Styrkir til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum

Í ljósi góðs árangurs fyrri úthlutunar til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum hefur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ákveðið að ráðstafa aukalega 100 milljónum króna í verkefnið. Um er að ræða framhald fyrri úthlutunar sem hvetur til fjárfestinga í orkusparandi tækni og búnaði í ylrækt.
Loftslags- og orkusjóði hefur verið falið að hafa umsjón með úthlutun styrkjanna.
Markmið styrkjanna er að draga úr orkunotkun í gróðurhúsum og bæta orkunýtni, meðal annars með innleiðingu á LED-ljósum og öðrum orkusparandi búnaði. Slíkar aðgerðir skila sér í lægri rekstrarkostnaði fyrir bændur og stuðla að minni orkuþörf samfélagsins í heild.
Um veitingu styrkja fer samkvæmt reglugerð nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð.
Styrkhæfi verkefna og áherslur
Styrkir verða veittir til framleiðenda garðyrkjuafurða. Áhersla skal fyrst og fremst lögð á að styrkja verkefni sem falla að hlutverki sjóðsins, og horft verður til eftirfarandi forgangsröðunar við úthlutun:
- Verkefni sem skila mestum orkusparnaði á hverja styrkkrónu.
- Verkefni sem auka rekstrarhagkvæmni í rekstri gróðurhúss.
- Lausnir sem auka tæknivæðingu og samkeppnishæfni greinarinnar.
- Verkefni sem nýtast sem fyrirmynd fyrir aðra í greininni.
- Hvort verkefni hafi áður hlotið stuðning frá Loftslags- og orkusjóði.
Styrkhlutfall og styrkfjárhæðir
Hámarksstyrkhlutfall og styrkfjárhæð í úthlutunum fyrir styrki vegna framleiðenda garðyrkjuafurða skal vera 40% af heildarkostnaði fjárfestingar (án vsk.) og að hámarki 15 m.kr. fyrir hvern framleiðanda garðyrkjuafurða.
Skipting greiðslna til styrkþega skal vera eftirfarandi:
- Framvindugreiðsla, 70%, greiðist samkvæmt samningi og framlagningu gagna um framvindu verkefnis.
- Lokagreiðsla, 30% af styrkupphæð, fer fram þegar verkefni er lokið og lokaskýrslu um framkvæmd verks er skilað og hún samþykkt af Loftslags- og orkusjóði.
Fylgigögn
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
- Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur, aðra þátttakendur og samstarfsaðila, ef einhverjir eru.
- Nafn, kennitala og símanúmer þess sem annast samskipti við sjóðinn.
- Lýsing á verkefninu og því hvernig það samræmist markmiðum og áherslum styrkveitinga, þar á meðal 30. gr. reglugerðar nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð.
- Tíma- og verkáætlun.
- Sundurliðuð fjárhagsáætlun verkefnis og upplýsingar um fjármögnun.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2025.
Sótt er um á www.orkusjodur.is












