Umhverfis- og orkustofnun hefur borist umsókn frá Alvotech hf. um leyfi til afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra örvera í rannsóknaraðstöðu fyrirtækisins að Lambhagavegi 7, 113 Reykjavík.
Starfsemin sem hér um ræðir fellur undir lög nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur og reglugerð nr. 275/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera. Umræddar örverur falla undir afmörkunarflokk 1 (biosafety level 1) sem felur í sér minnstu mögulega áhættu fyrir fólk og umhverfi.
Ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur var tilkynnt um umsóknina en ekki er þörf á umsögn frá nefndinni. Þar sem um er að ræða nýja starfsemi var Vinnueftirlitinu tilkynnt um umsóknina.
Umhverfis- og orkustofnun mun auglýsa ákvörðun sína um útgáfu leyfis síðar.







