Umhverfis- og orkustofnun auglýsir áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Blóðbankann Landspítala til hefja starfsemi Blóðbankans (kt. 500300-2130) í Kringlunni 4-6 (F2220515, merking 02-0401 í rýmum merktum 0502 og 0503).
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.
Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til og með 15. september 2025. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar UOS2509053.





