Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Rannsóknarleyfi

Leiðbeiningar fyrir umsókn um rannsóknarleyfi

Almennt um rannsóknarleyfi

Umhverfis- og orkustofnun getur heimilað rannsóknir eða leit að auðlindum í jörðu samanber 6. mgr. 4. gr. laga nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (auðlindalög). Samkvæmt sömu lögum getur stofnunin einnig heimilað rannsóknir vatnsafli til raforkuframleiðslu. Þessar leiðbeiningar eiga einnig við um rannsóknir skv. lögum nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins (hafsbotnslög). 

Rannsóknarleyfi samkvæmt auðlindalögum felur í sér heimild til þess að leita að viðkomandi auðlind á tilteknu svæði á leyfistímanum, rannsaka umfang, magn og afkastagetu hennar, með þeim skilmálum öðrum sem tilgreindir eru í lögunum og stofnunin telur nauðsynlega.  

Hvenær þarf ekki að sækja um leyfi?

Ekki þarf rannsóknarleyfi ef leit eða rannsókn fer fram á vegum landeiganda (innan netlaga). Þó ber landeiganda að senda Umhverfis- og orkustofnun áætlun og lýsingu á fyrirhuguðum borunum, sprengingum, gerð námuganga eða öðrum verulegum framkvæmdum í þessu skyni. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að setja landeiganda þau skilyrði sem nauðsynleg eru talin vegna öryggis eða af tæknilegum ástæðum eða ef ætla má að leit eða rannsóknir geti spillt vinnslu sem fram fer á svæðinu eða möguleikum til vinnslu síðar. 

Nánar er fjallað um kröfur vegna veitingar rannsóknarleyfa í viðeigandi lögum.  

Gjaldtaka 

Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að innheimta gjald fyrir rannsóknarleyfi og fyrir eftirlit sem stofnuninni er falið. Gjaldið má ekki vera hærra en nemur kostnaði við undirbúning, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar þjónustu, afgreiðslu leyfis og eftirlits með leyfishöfum, samanber 20. gr. a.auðlindalaga.

Umsóknir

Til að sækja um rannsóknarleyfi skal fyrst sækja og fylla út umsóknareyðublaðið hér að neðan.

Helstu gögn og upplýsingar sem fylgja skulu umsókn um rannsóknarleyfi (sjá nánari leiðbeiningar í umsóknareyðublaði): 

  1. Nafn umsækjanda, kennitala hans, heimilisfang og upplýsingar um rekstrarform. 
  2. Fyrirhugað rannsóknarsvæði, kort af rannsóknarsvæði i ásamt hnitsetningu þess skal fylgja umsókn.  
  3. Upplýsingar um stöðu skipulagsmála og stöðu varðandi málsmeðferð vegna umhverfismats. 
  4. Tímasetning rannsóknarinnar, og rannsóknaráfanga.
  5. Tímasett rannsóknaráætlun. 
  6. Yfirlit um fyrri rannsóknir á svæðinu, skýrslur og gögn.
  7. Umhverfisþættir, þ.m.t.áhrif á nýtingu í nágrenni rannsóknarsvæðis. 
  8. Upplýsingar um landeigendur á rannsóknarsvæði. 
  9. Upplýsingar um borholur á rannsóknarssvæðinu.

Útfylltri umsókn er svo skilað ásamt fylgigögnum með því að senda okkur skilaboð hér að neðan.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800