Vefurinn er í stöðugri þróun. Ef þú sérð eitthvað sem mætti betur fara, þá máttu láta okkur vita.

Áform um framlengingu bráðabirgðaheimildar Skotfélags Reykjavíkur til rekstrar skotvallar á Álfsnesi

Starfsleyfistillögur í auglýsingu

Umhverfis- og orkustofnun áformar að framlengja bráðabirgðaheimild Skotfélags Reykjavíkur, kt. kt. 600269-2919, til rekstrar skotvallar á Álfsnesi. Skotfélag Reykjavíkur óskar eftir framlengdri bráðabirgðaheimild til að áframhaldandi reksturs skotsvæðis á Álfsnesi á meðan unnið er að útgáfu starfsleyfis hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

Samkvæmt 6. mgr. 7. gr. a. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 er Umhverfis- og orkustofnun heimilt að framlengja bráðabirgðaheimild um allt að eitt ár að uppfylltum skilyrðum 7. gr. a. laganna.

Bráðabirgðaheimild Skotfélags Reykjavíkur gildir til 5. janúar nk. Umhverfis- og orkustofnun áformar að framlengja bráðabirgðaheimildina þar til starfsleyfið hefur verið gefið út en þó eigi lengur en til eins árs.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. janúar 2025 kl. 12:00. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar UST202412-198.

Núgildandi bráðabirgðaheimild

Áform um framlengingu bráðabirgðaheimildar

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, 603 Akureyri

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík