Persónuvernd og öryggi á vefnum
Á vefsvæðum Umhverfis- og orkustofnunar er lögð áhersla á persónuvernd og öryggi.
Hér er fjallað um vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við heimsóknir á vefi stofnunarinnar. Þegar þú notar vefina verða til upplýsingar um heimsóknina. Stofnunin miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.
Notkun á vefkökum
Vefkökur (e. cookies) eru litlar textaskrár sem eru vistaðar á tölvunni þinni eða snjalltæki þegar þú heimsækir vefi.
Notendur vefa Umhverfis- og orkustofnunar geta samþykkt eða hafnað vefkökum með því að smella á tannhjól sem er neðarlega í horninu til vinstri á skjánum. Einnig er hægt stilla vafra þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu.
Vefkökur frá fyrsta aðila (e. first-party cookies) koma frá sama léni og vefurinn sem þú heimsækir. Vefir stofnunarinnar nota aðeins slíkar vefkökur sem nauðsynlegar eru fyrir virkni vefsins. Upplýsingar úr þeim eru ekki greindar frekar.
Vefkökur frá þriðja aðila (e. third-party cookies) koma frá öðrum lénum. Það er stefna stofnunarinnar að nota sparlega og með ábyrgum hætti vefkökur frá þriðja aðila.
Umhverfis- og orkustofnun notar Google Analytics og Plausible Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, hvaða síða er heimsótt, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar eru nýttar við þróun vefsins. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu (IP tölur notenda ekki skráðar) og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.
Vefkökur frá eftirfarandi aðilum geta vistast á tölvu notanda ef þjónustan er nýtt á vefum stofnunarinnar.
Hafa samband – ábending eða fyrirspurn
Hægt er að hafa samband við Umhverfis- og orkustofnun með því að senda tölvupóst. Ef óskað er svars er nauðsynlegt að gefa upp nafn, netfang og efni ábendingar/fyrirspurnar. Ábending/fyrirspurn er umsvifalaust send á almennt netfang stofnunarinnar og komið áleiðis til starfsmanns.
Tölvupóstur til vefumsjónar
Hægt er að senda tölvupóst til vefumsjónar, vefur@uos.is, með ábendingum er varða vefinn.
SSL skilríki
Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.
SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.