Til baka
27. júní 2025
Ákvörðun um framlengingu á rannsóknarleyfi Reykjavík Geothermal ehf.
Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um framlengingu á rannsóknarleyfi Reykjavík Geothermal ehf. til 31. desember 2027. Félagið óskaði eftir framlengingu vegna tafa sem ollu því að ekki var unnt að framkvæma fyrirhugaðar rannsóknir fyrir lok gildistíma leyfisins.
Áformin voru auglýst þann 24. júní til og með 26. júní 2025, en engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 2. mgr. 33. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu nr. 57/1998, sbr. 4. gr. laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011.
Tengd skjöl:
Framlenging á rannsóknarleyfi Reykjavík Geothermal ehf. til 31. desember 2027