Til baka

23. júní 2025

Tillaga að rannsóknarleyfi til hagnýtra rannsókna á örverum fyrir Bláa Lónið Ísland ehf. á afmörkuðu jarðhitasvæði

Bláa Lónið Ísland ehf., kt. 490792-2369, Norðurljósavegi 9, 241 Grindavík, óskaði með bréfi til Umhverfis- og orkustofnunar, dagsettu 31. mars 2025, eftir rannsóknarleyfi til hagnýtra rannsókna, sbr. 34. gr. laga nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu og sbr. 3. gr. reglna nr. 234/1999 um veitingu leyfa til rannsókna og nýtingar á örverum sem vinna má á jarðhitasvæðum. Sótt er um sérleyfi til rannsókna á hveraörverum, sbr. skilgreiningu í 3. gr. reglnanna á jarðhitasvæðum A1 Reykjanes og A2 Svartsengi.

Umhverfis- og orkustofnun hefur unnið tillögu að rannsóknarleyfi fyrir Bláa Lónið Ísland ehf. og í samræmi við 1. mgr. 4. gr. reglna nr. 234/1999 er þeim er málið varðar gefið færi á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum.

Tillöguna að rannsóknarleyfi til hagnýtra rannsókna má nálgast hér í fylgiskjali.

Athugasemdir við leyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun (uos@uos.is) merkt UOS2504033. Ef óskað er eftir að kynna sér umsóknargögn er hægt að senda beiðni þar að lútandi á sama hátt. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 13. júlí 2025.

Fylgiskjal:

Tillaga að rannsóknarleyfi til hagnýtra rannsókna – Bláa Lónið Ísland ehf.

Við erum á samfélagsmiðlum

Facebook merki

Umhverfis- og orkustofnun

Rangárvellir 2, hús 8

603 Akureyri

Suðurlandsbraut 24

108 Reykjavík

Hafa samband

Netfang: uos@uos.isSími: 569 6000

Opið fyrir símtöl milli kl. 8:30 og 15 alla virka daga

Kennitala: 700924-1650

Persónuvernd og öryggi á vefnum