Útgáfa nýtingarleyfis á jarðhita í Gljúfurárholti fyrir Veitur ohf.

Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Veitum ohf. leyfi til nýtingar jarðhita allt að 20 l/s meðalnýtingu í Gljúfurárholti, sveitarfélagi Ölfusi vegna hitaveitu, í samræmi við 6. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu nýtingarleyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar skv. 2. mgr. 33. gr. auðlindalaga og sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800