Til baka

30. júní 2025

Útgáfa á endurskoðuðu starfsleyfi fyrir Arctic Smolt ehf. Tálknafirði

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Arctic Smolt ehf. að Norður-Botni í Tálknafirði fyrir seiðaeldi á laxfiskum. Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 9. apríl til og með 8. maí sl. og hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.

Aftast í starfsleyfinu fylgir greinargerð þar sem farið er yfir málsmeðferðina og tekin afstaða til niðurstöðu umhverfismats, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl:

Starfsleyfi fyrir Arctic Smolt ehf.

Ákvörðun um útgáfu

Við erum á samfélagsmiðlum

Facebook merki

Umhverfis- og orkustofnun

Rangárvellir 2, hús 8

603 Akureyri

Suðurlandsbraut 24

108 Reykjavík

Hafa samband

Netfang: uos@uos.isSími: 569 6000

Opið fyrir símtöl milli kl. 8:30 og 15 alla virka daga

Kennitala: 700924-1650

Persónuvernd og öryggi á vefnum