Vefurinn er í stöðugri þróun. Ef þú sérð eitthvað sem mætti betur fara, þá máttu láta okkur vita.

Útgáfa á framlengdri bráðabirgðaheimild Skotfélags Reykjavíkur

Starfsleyfistillögur í auglýsingu

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um að framlengja bráðabirgðaheimild Skotfélags Reykjavíkur, kt. kt. 600269-2919, til rekstrar skotvallar á Álfsnesi.

Skotfélag Reykjavíkur óskaði eftir framlengdri bráðabirgðaheimild til áframhaldandi reksturs skotsvæðis á Álfsnesi á meðan unnið er að útgáfu starfsleyfis hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

Samkvæmt 6. mgr. 7. gr. a. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 er Umhverfis- og orkustofnun heimilt að framlengja bráðabirgðaheimild um allt að eitt ár að uppfylltum skilyrðum 7. gr. a. laganna.

Gildandi bráðabirgðaheimild Skotfélags Reykjavíkur gildir til 5. janúar nk. Umhverfis- og orkustofnun hefur ákveðið að framlengja bráðabirgðaheimildina þar til starfsleyfið hefur verið gefið út en þó eigi lengur en til eins árs, til 5. janúar 2026.

Áformin voru auglýst frá 2. janúar til hádegis 3. janúar 2025 en engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, 603 Akureyri

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík