Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Útgáfa leyfis til Reykjavík Geothermal ehf. vegna rannsókna á jarðhita við Bolaöldu

Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Reykjavík Geothermal ehf. leyfi til rannsókna á jarðhita við Bolaöldu – svæði B3 í sveitarfélaginu Ölfusi og Grindavíkurbæ, í samræmi við 4. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Afmörkun rannsóknarsvæðisins má finna í leyfinu hér að neðan.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu rannsóknarleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar skv. 2. mgr. 33. gr. auðlindalaga og sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl: 

Umsókn um rannsóknarleyfi

Rannsóknarleyfi Reykjavík Geothermal ehf. 

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800