Vefurinn er í stöðugri þróun. Ef þú sérð eitthvað sem mætti betur fara, þá máttu láta okkur vita.

Útgáfa á starfsleyfi fyrir Geo Salmo hf. við Þorlákshöfn

Útgefin starfsleyfi
Geo Salmo

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Geo Salmo hf. vestan Þorlákshafnar fyrir landeldi á laxfiskum. Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 23. janúar til og með 20. febrúar sl. og hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.

Aftast í starfsleyfinu fylgir greinargerð þar sem farið er yfir málsmeðferðina og tekin afstaða til niðurstöðu umhverfismats, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl:
Starfsleyfi fyrir Geo Salmo hf.
Ákvörðun um útgáfu
Vöktunaráætlun

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, 603 Akureyri

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík