Hefurðu skoðað Orkuspá Íslands?

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Skuldbindingar og markmið Íslands í loftslagsmálum

Alþjóðlegt og evrópskt regluverk

Ísland hefur innleitt reglur Evrópusambandsins um samdrátt í losun til og með 2030, með upptöku viðeigandi reglugerða inn í EES samninginn.


Ísland er jafnframt aðili að rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (e. United Nations Framework Convention on Climate Change; UNFCCC). Undir þeim rammasamningi var Parísarsamningurinn samþykktur árið 2015.

Til 2030

Skuldbindingar gagnvart Evrópusambandinu – 2021-2030 

Losun Íslands er skipt í þrjá skuldbindingarflokka:

  • Samfélagslosun inniheldur aðallega losun frá vegasamgöngum, landbúnaði, sjávarútvegi, jarðvarmavirkjunum, vörunotkun og úrgangi. Skuldbinding Íslands í samfélagslosun hefur ekki enn verið staðfest. Líklegt er að krafan verði að draga úr losun um 41% árið 2030 miðað við 2005. Ísland mun einnig fá svokallaðar árlegar losunarúthlutanir (Annual Emission Allocations, AEAs) fyrir hvert ár tímabilsins 2021–2030. Ef Ísland stenst ekki skuldbindingar þarf að gera upp umframlosun með því að kaupa losunarúthlutanir frá öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins (EES). 
  • Losun frá landnotkun á við um alla losun og bindingu vegna hvers konar landnotkunar og skógræktar. Á fyrri helmingi tímabilsins (2021-2025) má nettólosun ekki aukast umfram ákveðin viðmið og á seinni helmingi tímabilsins (2026-2030) verður samdráttarkrafa. Sú krafa liggur ekki fyrir enn. 
  • Undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fellur losun frá stóriðju, flugi og sjóflutningum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Það eru ekki neinar beinar skuldbindingar fyrir íslenska ríkið; hvert fyrirtæki ber sjálft ábyrgð á að standa skil á losunarheimildum.   


Image



Ísland hefur innleitt reglur Evrópusambandsins um samdrátt í losun til og með 2030, með upptöku viðeigandi reglugerða inn í EES samninginn. Losun á tímabili 2021-2025 verður gerð upp á árunum 2027-2028, og losun á tímabili 2026-2030 á árunum 2032-2033. 

Markmið gagnvart Parísarsamningnum: Landsákvarðað framlag Íslands til 2030 

Ísland er aðili að rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (e. United Nations Framework Convention on Climate Change; UNFCCC). Undir þeim rammasamningi var Parísarsamningurinn samþykktur árið 2015. Aðalmarkmið samningsins er að halda hækkun hitastigs jarðar undir 2°C miðað við meðalhitastig við upphaf iðnvæðingarinnar en jafnframt skuli leitast við að halda hækkuninni undir 1,5°C. Að auki miðar samningurinn að því að efla getu ríkja til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga með aðlögun og stuðningi þróaðra ríkja við þróunarríki og viðkvæmari lönd. 

Samkvæmt samningnum eiga aðildarríkin að setja sér markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, svonefnd landsákvörðuð framlög (Nationally Determined Contributions; NDCs).  

Landsákvarðað framlag Íslands til 2030 endurspeglar skuldbindingar Íslands samkvæmt losunarbókhaldsreglum Evrópusambandsins og eru eftirfarandi: 

  • Fyrir samfélagslosun er markmið Íslands að draga úr 41% losun árið 2030 miðað við 2005.¹ 
  • Fyrir losun vegna landnotkunar er markmið Íslands að standast kröfur ESB regluverksins. 
  • Hvað varðar losun sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir er markmið Íslands að taka þátt í kerfinu og standast allar kröfur sem kerfið settur. 


¹ Skuldbindingin fyrir árið 2030 byggir á samfélagslosun ársins 2005 eins og hún kemur fram í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 29/2022 (3109 þúsund tonn CO₂-ígildi). Línuritið sýnir hins vegar nýjustu losun skv. losunarbókhaldi sem hefur tekið breytingum. Það veldur því að losunartalan fyrir 2005 er ekki sú sama og í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Til 2035

Landsákvarðað framlag Íslands til 2035 til Parísarsamningsins er áfram skipt í skuldbindingaflokkana samfélagslosun, landnotkun og viðskiptakerfi ESB, þrátt fyrir að ESB hafi ekki enn útfært hvernig regluverkið verði eftir 2030. Landsákvarðað framlag Íslands til 2035 er eftirfarandi: 

  • Fyrir samfélagslosun er markmið að draga úr losun um 50-55% miðað við árið 2005. 
  • Fyrir landnotkun er markmið að draga úr losun um 400-500 þúsund tonn CO₂-ígildi miðað við árið 2025. 
  • Fyrir losun sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir er markmið Íslands áframhaldandi þátttaka í kerfinu. Einnig er markmið Íslands að halda áfram að styðja við nýsköpun og föngun, nýtingu og förgun koldíoxíðs, með áherslu á atvinnugreinar sem falla undir viðskiptakerfið. 

Til 2040

Fyrir utan alþjóðlegar skuldbindingar hefur Ísland einnig lögfest landsmarkmið um að ná kolefnishlutleysi árið 2040. Unnið er að því að ákvarða nákvæmlega hvaða geirar eigi að falla undir umfang kolefnishlutleysis og hvaða bókhaldsreglur eigi að gilda. 

Samfélagslosun Íslands frá árinu 2005, framreiknuð til 2035 ásamt skuldbindingum og markmiðum

* Árlegar losunarheimildir Íslands í samfélagslosun (miðað við áætlað markmið um 41% samdrátt árið 2030, í samanburði við 2005).

Umhverfis- og orkustofnun

Kýótóbókunin

Fyrsta skuldbindingatímabilið 2008-2012

Ísland stóð við skuldbindingar sínar fyrir fyrsta viðskiptatímabil Kýótóbókunarinnar fyrir árin 2008–2012. Samkvæmt sérstakri ákvörðun Loftslagssamningsins (oft nefnd „íslenska ákvæðið“) var Íslandi þó heimilt að halda losun frá nýrri stóriðju eða stækkun stóriðjuvera utan við losunarskuldbindingar sínar.

Losun Íslands, fyrir utan losun frá stóriðju, alþjóðaflugi, alþjóðasiglingum og landnotkun og skógrækt, var rúmlega 23,36 milljón CO₂-ígildi á tímabilinu. Ísland gerði upp tæplega 20,10 milljón losunarheimildir og rúmlega 3,26 milljón voru tilkynntar sérstaklega undir íslenska ákvæðinu. Upplýsingar um uppgjör Íslands sem og annarra ríkja fyrir þetta fyrra skuldbindingatímabil má finna á vefsíðu UNFCCC.

Seinna skuldbindingatímabilið 2013-2020

Árið 2012 var haldinn samningafundur í Doha og var þar samþykkt breyting á Kýótóbókuninni sem kvað á um bindandi losunarmörk fyrir árin 2013-2020. Þetta átti við um alla losun nema losun frá alþjóðaflugi, alþjóðasiglingum, og landnotkun og skógrækt. Aðildaríki gátu þó nýtt bindingu kolefnis vegna landnotkunar og skógræktar við uppgjörið að einhverju leyti.

Samkvæmt breytingunni þurfti Ísland, í samfloti með ESB, að draga úr losun um 20% á tímabilinu 2013-2020 m.v. losun árið 1990. Samstarfið milli ESB og Íslands var tvíþætt. Annars vegar innleiddi Ísland regluverk um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (e. ETS). Hins vegar gerðu Ísland og ESB tvíhliða samning um samfélagslosun Íslands (áður kallað „losun á beinni ábyrgð Íslands“). Samkvæmt samningnum fékk Ísland úthlutað losunarheimildum sem jafngilda losun á rúmlega 15,33 milljón CO₂-ígildi á tímabilinu 2013-2020.

Samfélagslosun Íslands á þessu seinna tímabili reyndist 23,03 milljón CO₂-ígildi eða 17% (3,40 milljón CO₂-ígildi) umfram losunarheimildirnar. Ísland þurfti því að kaupa losunarheimildir sem samsvöruðu 3,40 milljón CO₂-ígildi til að standast skuldbindingar sínar á seinna skuldbindingatímabilinu. Íslenska ríkið keypti losunarheimildir fyrir þennan mismun af Slóvakíu og voru þær millifærðar á reikning Íslands þann 31. ágúst 2023.

Þann 4. september 2023 framkvæmdi Umhverfisstofnun (nú Umhverfis- og orkustofnun) uppgjörið fyrir hönd Íslands þar sem gerðar voru upp 23.030.200 losunarheimildir.

Uppgjöri Íslands vegna Kýótóbókunarinnar er því lokið. Frekari upplýsingar um uppgjör Íslands fyrir seinna tímabil Kýótó-bókunarinnar má finna hér.

Hvernig er gagnaskilum háttað?

Árlega skilar Umhverfis- og orkustofnun landsskýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda (National Inventory Report; NIR) til Evrópusambandsins og rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (United Nations Framework Convention on Climate Change; UNFCCC) í samræmi við skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum.

Losun frá alþjóðaflugi og alþjóðasiglingum er metin og kemur fram í losunarbókhaldinu en er ekki hluti af losun sem telur gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum Íslands, nema losun sem kemur frá flugi og siglingum sem falla undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

Samkvæmt skuldbindingum Íslands gagnvart UNFCCC og samkomulagi Íslands og ESB um fyrirkomulag losunarbókhalds fyrir gróðurhúsalofttegundir eru gagnaskil á fyrri hluta hvers árs. Hér er farið nánar yfir þau skil og þær tímasetningar sem Íslandi hefur skuldbundið sig til að vinna eftir.

  • Í síðasta lagi 31. júlí ár hvert ber að skila bráðabirgðatölum til ESB sem endurspegla losun ársins á undan. Gögnin teljast bráðabirgðagögn bæði vegna þess að gagnaveitendur hafa í mörgum tilfellum einungis skilað bráðabirgðagögnum til Umhverfis- og orkustofnunar á þessum tímapunkti og einnig vegna þess að þarna hafa útreikningarnir ekki farið í gegnum alla rýni, þar með talda úttektar- og gæðaferla, sem þarf að framkvæma áður en lokatölum er skilað.
  • Í síðasta lagi 15. janúar ár hvert ber að skila bráðabirgðatölum til ESB fyrir öll árin (frá 1990 til og með árinu tveimur árum fyrir skil). Þessi gögn eru búin að fara í gegnum gæðaferla hjá Umhverfis- og orkustofnun, en hafa ekki farið í rýni hjá sérfræðingum ESB.
  • Í síðasta lagi 15. mars ár hvert ber að skila tölum og skýrslu til ESB fyrir öll árin (frá 1990 til og með árinu tveimur árum fyrir skil). Þessi gögn eru búin að fara í gegnum úttekt á vegum ESB, og eru tölurnar uppfærðar í samræmi við athugasemdir úttektaraðila. Á sama tíma, annað hvert ár, ber einnig að skila upplýsingum um stefnur og aðgerðir í loftslagsmálum ásamt framreiknaðri losun gróðurhúsalofttegunda fram til ársins 2055.
  • Í síðasta lagi 15. apríl ár hvert ber að skila lokatölum og lokaskýrslu fyrir öll árin (frá 1990 til og með árinu tveimur árum fyrir skil) til UNFCCC. Um leið og þeim er skilað eru öll gögn og skýrslur birtar á vefsíðu UNFCCC. Þessi skil teljast sem opinber lokaskil.


Einnig ber að skila tölulegum upplýsingum og skýrslu um stöðu gagnvart Parísarsamningnum til UNFCCC. Skýrslan inniheldur m.a. upplýsingar um sögulega og framreiknaða losun, um stefnur og aðgerðir í loftslagmálum, um aðlögun að loftslagsbreytingum sem og um þróunaraðstoð í þágu loftslagsmála. Þessari skýrslu, sem ber heitið „Biannual Transparency Report“, var skilað í fyrsta skipti í september 2025 af Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og er aðgengileg á vefsíðu Loftslagssamningsins.

Sífellt er unnið að endurbótum á losunarbókhald Íslands til að auka gæði og áreiðanleika gagnanna og einnig er bókhaldið rýnt mjög reglulega af sérfræðingum UNFCCC. Þetta gerir það að verkum að stundum þarf að gera breytingar á tölum sem leiða til þess að skila þarf tölunum aftur til UNFCCC á milli hefðbundinna skila.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800