Losun gróðurhúsalofttegunda
Losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum veldur loftslagsbreytingum og afleiðingar þessara breytinga á jörðinni eru meðal annars þær að jöklar bráðna, yfirborð sjávar hækkar, vistkerfi raskast og öfgar í veðurfari aukast. Auk þess verða breytingar á lífsskilyrðum í sjó vegna breytinga á straumum, sýrustigi og seltu. Ekki er hægt að vita með vissu allar þær afleiðingar sem loftslagsbreytingar hafa á mannkynið en það er ljóst að aukin losun gróðurhúsalofttegunda raskar því jafnvægi sem annars var til staðar fyrir iðnbyltingu.
Hver er staðan?
Samantekt með nýjustu upplýsingum um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum.

Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins











