Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Losunarstuðlar

Umhverfis- og orkustofnun leggur fram losunarstuðla til að reikna út losun frá helstu uppsprettum gróðurhúsalofttegunda í rekstri fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi.

Markmiðið er að aðstoða við samantekt losunargagna og að gögnin séu í samræmi við Landsskýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda, sem íslensk stjórnvöld taka saman og skila til rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (UNFCCC).

Núgildandi losunarstuðlar

Skjalið verður uppfært eftir því sem þörf er á. Hafið samband við uos@uos.is fyrir ábendingar og nánari upplýsingar. 

Landsskýrslur um losun gróðurhúsalofttegunda

Skýrslurnar ná aftur til ársins 2004 og eru aðgengilegar bæði á íslensku og ensku.

Sjá skýrslur

Hvað eru losunarstuðlar?

Losunarstuðull er stuðull sem notaður er til að reikna út losun gróðurhúsalofttegunda með því að margfalda hann við viðeigandi grunngögn. 

  • Til dæmis er hægt að reikna út magn gróðurhúsalofttegunda sem losna við bruna eldsneytis með því að margfalda losunarstuðul fyrir brennt eldsneyti við magn þess eldsneytis sem notað var.

Hvaða losun ná losunarstuðlarnir utan um?

Athugið að þeir losunarstuðlar sem birtir eru í þessu skjali eru ekki byggðir á lífsferlisgreiningum heldur sýna þeir beina, staðbundna losun sem á sér stað í hverjum flokki fyrir sig, á Íslandi.

  • Til dæmis tekur losunarstuðull vegna urðunar úrgangs til beinnar metanlosunar frá urðunarstöðum en ekki til losunar vegna flutnings á úrganginum.


Einnig má nefna að losunarstuðlar vegna bruna á eldsneyti taka hvorki til framleiðslu á eldsneytinu, flutningi þess né framleiðslu og förgun á farartækinu.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800