Stefnur í mannauðsmálum
Mannauðsstefna
Hæfni
Umhverfis- og orkustofnun leggur áherslu á fagmennsku og þverfaglegt samstarf. Jafnframt er áhersla á frumkvæði, framsýni, skilvirkni og lausnarmiðaða hugsun. Við erum þjónustustofnun og höfum þarfir þjónustuþega í forgrunni. Manneskjumiðuð nálgun er í fyrirrúmi í samskiptum og samstarfi innan stofnunarinnar, við þjónustuþega og samstarfsaðila. Stöðugar umbætur og gæðamenning eru snar þáttur í starfi okkar og við viljum vera fremst í flokki í stafrænni þróun og greiningum. Við ráðningar eru eiginleikar sem styðja við þessar áherslur hafðir til hliðsjónar.

Starfsþróun
Við viljum vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem fólk getur vaxið í starfi. Við bjóðum upp á vinnu við krefjandi verkefni og tækifæri til að eflast í starfi. Starfsfólk getur sóst eftir að færast milli fjölbreyttra verkefna sem krefjast samvinnu sérfræðinga á ólíkum sviðum. Við gerum ráð fyrir að starfsfólk okkar eflist og þróist í takti við tækninýjungar og bjóðum upp á fræðslu til að styðja við áherslur okkar. Stofnunin leggur áherslu á og styður við fræðslu og endurmenntun samhliða vinnu.

Heilsa, öryggi og vellíðan
Heilsa, öryggi og vellíðan er í forgrunni í starfi stofnunarinnar og við tökum mið af öryggi og heilsu í starfsumhverfi okkar. Við erum með virka áætlun um öryggi og heilbrigði. Fjölskyldustefna okkar styður við sveigjanleika vegna fjölskylduábyrgðar. Einelti og kynbundin og kynferðisleg áreitni eru ekki liðin og skýrar verklagsreglur eru til staðar til að styðja við öryggi og vellíðan í starfi.

Jafnrétti og samskipti
Við berum virðingu fyrir störfum og fagþekkingu hvers annars sem og einkalífi. Við leggjum áherslu á uppbyggileg samskipti, sýnum hvert öðru stuðning og gefum hvert öðru endurgjöf sem styður við vöxt og árangur. Fagmennska, framsýni og virðing eru gildin okkar og við vinnum samkvæmt þeim í allri okkar framgöngu í starfi. Við fögnum fjölbreytileika og jafnrétti er hluti af menningu okkar.

Starfsaðstaða
Vinnustaðurinn býður upp á starfsstöðvar víða um land sem eiga að uppfylla þarfir okkar um örugga aðstöðu sem eflir öryggi, heilsu, vellíðan og ekki síður árangur okkar. Stöðvarnar eiga að styðja við teymisvinnu og fjölbreyttar þarfir fólks en einnig kröfur um vinnuvernd, upplýsingaöryggi og jafnræði. Einnig er sveigjanleiki í nýtingu rýma mikilvæg. Við hvetjum fólk til að færa sig á milli stöðva eftir þörfum og áhuga og einnig heimsækja stöðvar um landið. Við höfum markvissa fjarfunda menningu og gefum jafnframt kost á fjarvinnu að hluta.

Starfsánægja
Það skiptir miklu máli að fólki líði vel í vinnunni og því er starfsánægja könnuð nokkrum sinnum á ári. Við viljum hafa óþvingað andrúmsloft á vinnustaðnum og gott félagslíf. Í Umhverfis- og orkustofnun er áhersla á hreinskiptin, styðjandi og heiðarleg samskipti. Við styðjum við starfsmannafélagið og viljum hvetja til félagslegra viðburða og útivistar.

Starfskjör
Markmið stofnunarinnar er að bjóða samkeppnishæf mánaðarlaun. Sveigjanleiki í vinnutíma þjónar bæði vinnu og einkalífi og styður við heilsueflandi umhverfi. Allt starfsfólk á að njóta jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni. Stofnunin hefur, í samstarfi við kjarafélög, innleitt verklag og skilgreint viðmið við ákvörðun launa þar sem hver og einn fær greitt fyrir starf sitt samkvæmt verðmæti þess óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum ástæðum. Þetta er gert með stofnanasamningum.

Fjölskyldustefna
Umhverfis- og orkustofnun vill stuðla að því að starfsfólk hafi sem best tækifæri til starfsþróunar, sé kleift að skilja á milli vinnu og fjölskyldulífs, samhliða því að sinna fjölskyldu og að geta notið einkalífs síns sem best í frítíma sínum. Til viðbótar lögbundnum réttindum vill stofnunin leggja sitt af mörkum til að ná fram framangreindum markmiðum.
- Umhverfis- og orkustofnun hefur sett sér almenn viðmið um sveigjanlegan vinnutíma, sem eiga við um allt starfsfólk og þarf ekki að sækja sérstaklega um
- Foreldrar geta óskað eftir lengingu á barnseignarleyfum þannig að leyfi spanni allt að eitt ár skv. samkomulagi við yfirmann og reglur Fæðingarorlofssjóðs
- Starfsfólk getur óskað eftir tímabundið minnkuðu starfshlutfalli eða auknum sveigjanleika til að geta sinnt börnum sínum eða fjölskyldusinni vegna sérstakra fjölskylduaðstæðna. Slík leyfi eru veitt til árs í senn.
- Almennt er starfsfólk ekki boðað á fundi fyrir kl. 9:00 að morgni og miðað er við að fundir standi ekki lengur en til kl. 16:00 síðdegis.
- Börn starfsfólks eru velkomin með foreldrum sínum á skrifstofur vinnustaðarins og geta nýtt barnarýmið á Suðurlandsbraut, auk þess er stefnt að barnvænu umhverfi á Akureyri
- Umhverfis- og orkustofnun býður starfsfólki sínu launað leyfi f.h. á aðfangadag og gamlársdag til að njóta sem best samvista við fjölskyldu þessa daga.
Öryggis- og heilsustefna
Öryggi, heilsa og gott vinnuumhverfi er alltaf í forgrunni hjá Umhverfis- og orkustofnun.
Umhverfis- og orkustofnun hefur ákveðið að vinna samkvæmt viðmiðum um heilsueflandi vinnustaði www.heilsueflandi.is og vinnur þannig að stöðugum umbótum með markvissum hætti að góðri öryggis- og heilsumenningu.
Öryggi
Öryggi starfsfólks er alltaf í forgrunni hjá Umhverfis- og orkustofnun. Ekkert verkefni er svo mikilvægt að hætta megi öryggi fólks við framkvæmd þess.
Stofnunin er til fyrirmyndar í öryggismálum og einsetur sér að vernda þau sem starfa fyrir stofnunina með því að skapa slysalaust vinnuumhverfi þar sem ekkert starfsfólk eða aðrir bíði heilsutjón vegna starfseminnar.
Allir sem starfa fyrir Umhverfis- orkustofnun eru ábyrgir fyrir að gæta að eigin öryggi, tala fyrir auknu öryggi samstarfsfólks síns og leitast við að koma auga á, meta og stjórna áhættum í vinnuumhverfinu.
Hreyfing og heilbrigði
Starfsfólk er stutt og hvatt til heilbrigðs og vistvæns lífsstíls. Hreyfing er mikilvægur liður í því og stuðlar jafnframt að betri orku og andlegri heilsu.
Mataræði
Matur og hressing sem boðið er upp á í vinnunni er hollur kostur og vinnustaðurinn býður upp á fræðslu um hollt mataræði.
Vellíðan og andleg heilsa
Við leggjum mikla áherslu á vellíðan og andlega heilsu og vinnum hvert og eitt og í sameiningu að því að öllum líði vel í vinnunni. Við styðjum við starfsfólk í veikindum, persónulegum áföllum og við meðferð við fíknivanda og endurkomu til starfa eftir meðferð, veikindi eða áföll.
Hvernig veitum við hvert öðru stuðning, bæði stjórnendur og starfsfólk?
- Hvetjum til nýsköpunar og umbóta í starfsumhverfi sem stuðlar að skilvirkni
- Erum til staðar
- Stuðlum að góðu sálfélagslegu umhverfi á vinnustað
- Leitum lausna
- Stjórnendur þekkja merki kulnunar og streitu og kunna að bregðast við
- Bjóðum hvert öðru aðstoð
- Hrósum þegar vel er gert
Stefnunni er framfylgt með sérstakri aðgerðaáætlun 2025 - 2026.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





