Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Reglur um borholur

Leiðbeiningar, tilkynningar og gagnaskil

Um reglurnar

Reglur þessar lúta að skráningu, hönnun og frágangi borholna, sem og skil á upplýsingum til Umhverfis- og orkustofnunar. Tekið er tillit til umsagna sem stofnuninni bárust í tveimur umsagnarferlum um þær haustið 2018 og vorið 2019.

Fyrstu drög að borholureglum til umsagnar voru sendar út 5. júlí 2018.  Endurskoðuð drög að borholureglum voru send til umsagnar 30. janúar 2019.   Reglurnar voru gefnar út 28. október 2019. 

Markmið reglnanna er að að skilgreina aðferðir og skyldur við skráningu, hönnun, tilkynningu, borun og frágang á borholum. Er það von stofnunarinnar að með því megi auka meðal annars öryggi almennings í nágrenni borholna.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um reglurnar er hægt að hafa samband við Umhverfis- og orkustofnun hér á vefnum.

Tilkynningar og gagnaskil

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið í notkun nýtt kerfi fyrir gagnaskil vegna borholna. Gagnaskil með tölvupósti og öðrum sambærilegum leiðum verða lögð af. Ef þú berð ábyrgð á því að skila inn borholugögnum þarftu að sækja um aðgang að kerfinu.

Þegar þú sækir um aðgang er mikilvægt að þú sendir inn skrár um þær borholur sem þú berð ábyrgð á. Þannig er auðveldlega hægt að tengja þig við þær í kerfinu. Eftir að umsóknin hefur verið móttekin höfum við samband við þig til að veita þér aðgang að nýja kerfinu.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800