Rammaáætlun
Áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða
Hvað er rammaáætlun?
Áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, eða rammaáætlun eins og hún er jafnan nefnd, er ætlað að stuðla að því að að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi. Í áætluninni er leitast við að taka tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta sem og hagsmuna þeirra sem nýta þessi gæði.
Hlutverk Umhverfis- og orkustofnunar
Lög um verndar- og orkunýtingaráætlun fela stofnuninni eftirfarandi hlutverk:
- Móttaka og frumathugun virkjunarkosta (9. gr.)
- Mat á því hvort stækkun virkjunar falli undir rammaáætlun (3. gr. 3. mgr.)
- Samráð um samræmi við vatnaáætlun (10. gr.)
Framsetning á kostnaðaráætlun fyrir virkjanir
Skilgreindir kostir rammaáætlunar
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





