Bráðabirgðaheimild
Leiðbeiningar fyrir umsókn um bráðabirgðaheimild
Hvað er bráðabirgðaheimild?
Bráðabirgðaheimild er tímabundin heimild fyrir starfsemi sem fellur undir lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir áður en starfsleyfi hefur verið gefið út fyrir starfseminni.
Slík heimild er undantekning frá þeirri meginreglu að öll starfsemi sem fellur undir lögin skuli hafa gilt starfsleyfi.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt á grundvelli 7. gr. a. laga nr. 7/1998, í sérstökum undantekningartilvikum, að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild þegar brýn þörf er á að hefja eða halda áfram starfsemi.
Bráðabirgðaheimild fyrir starfsemi er veitt að hámarki til eins árs í senn og er heimilt að framlengja hana um allt að eitt ár að uppfylltum skilyrðum laganna.
Skilyrði fyrir veitingu bráðabirgðaheimildar
- Fullnægjandi umsókn um starfsleyfi þarf að liggja fyrir hjá útgefanda starfsleyfis.
- Mat á umhverfisáhrifum eða niðurstaða um matsskyldu þarf að liggja fyrir ef starfsemin fellur undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
- Starfsemin þarf að vera í samræmi við gildandi skipulag samkvæmt skipulagslögum eða lögum um skipulag haf- og strandsvæða.
- Að um sé að ræða undantekningartilvik þar sem brýn þörf er á að hefja eða halda áfram starfsemi.
Bráðabirgðaheimildir hafa meðal annars verið veittar þegar brýn þörf hefur verið á að halda áfram starfsemi á meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu hjá starfsleyfisútgefanda. Einnig hafa þær verið veittar vegna brýnna almannahagsmuna. Þá hefur bráðabirgðaheimild líka verið veitt þegar nauðsynlegt var að tryggja starfsemi mikilvægra innviða í samfélaginu.
Lághitaboranir á Reykjanesi
Hugsað sem neyðarráðstöfun ef orkuver í Svartsengi yrði óstarfhæft og afhending á heitu vatni til byggða á Reykjanesi yrði ógnað.
Blóðsöfnun Blóðbankans
Veitt til að tryggja mikilvæga samfélagsþjónustu.
Rekstur Reykjavíkurflugvallar
Veitt til að tryggja starfsemi mikilvægra innviða í samfélaginu.
Hvaða upplýsingar þurfa að fylgja umsókn?
Eftirfarandi þættir þurfa að koma fram í umsókninni:
1. Upplýsingar um rekstraraðila (nafn og kennitala)
2. Fyrir hvaða starfsemi er sótt um bráðabirgðaheimild
3. Umfang starfseminnar
4. Hver er útgefandi starfsleyfis fyrir starfseminni (Umhverfis- og orkustofnun eða heilbrigðisnefnd)
5. Rökstuðningur fyrir því að um sé að ræða undantekningartilvik og að brýn þörf sé til staðar.
6. Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar á gildistíma bráðabirgðaheimildarinnar.
7. Upplýsingar um tengilið umsóknarinnar (nafn, sími og netfang).
Umsóknarferlið
Þegar fullnægjandi umsóknargögn hafa borist fer umsóknin almennt í eftirfarandi ferli:
- Umsókn er yfirfarin af Umhverfis- og orkustofnun.
- Aflað er umsagna frá viðeigandi aðilum, svo sem heilbrigðisnefnd.
- Ef skilyrði eru talin uppfyllt fyrir veitingu bráðabirgðaheimildar eru útbúin áform um veitingu bráðabirgðaheimildar ásamt starfsleyfisskilyrðum fyrir starfsemina.
- Áformin eru auglýst á heimasíðu stofnunarinnar í allt að eina viku. Í áformunum koma fram þau starfsleyfisskilyrði sem starfsemin sætir. Almenningi gefst kostur á að koma á framfæri athugasemdum á auglýsingatíma.
- Að auglýsingatímanum liðnum tekur stofnunin ákvörðun um það hvort veita eigi bráðabirgðaheimild.
- Ef upplýsingar í umsókn eru ófullnægjandi eða umsóknin uppfyllir ekki skilyrði fær umsækjandi tækifæri til koma með athugasemdir áður en endanleg ákvörðun er tekin um höfnun á veitingu bráðabirgðaheimildar.
Málsmeðferðartími
Afgreiða skal umsókn um bráðabirgðaheimild eigi síðar en fjórum vikum eftir að fullnægjandi umsókn berst.
Gjaldtaka
Innheimt er tímagjald fyrir vinnu við afgreiðslu umsókna um bráðabirgðaheimild, óháð því hvort bráðabirgðaheimild verði veitt eða umsókn hafnað, samkvæmt gildandi gjaldskrá stofnunarinnar.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





