Efnistökuleyfi á hafsbotni
Leiðbeiningar fyrir umsókn um leyfi til hverskonar töku eða nýtingu efna á hafsbotni utan netlaga.
Almennt um efnistöku
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins (hafsbotnslög) er óheimilt að taka eða nýta efni af hafsbotni eða úr honum nema að fengnu skriflegu leyfi Umhverfis- og orkustofnunar.
Auðlind samkvæmt hafsbotnslögum tekur til allra ólífrænna og lífrænna auðlinda hafsbotnsins annarra en lifandi vera.
Gjaldtaka
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að innheimta gjald fyrir þessi leyfi. Gjaldið má ekki vera hærra en nemur kostnaði við undirbúning, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar þjónustu, afgreiðslu leyfis og eftirlits með leyfishöfum, sbr. 20. gr. a. auðlindalaga.
Umsóknir
Til að sækja um efnistökuleyfi skal fylla út umsóknareyðublað hér að neðan.
Helstu gögn og upplýsingar sem fylgja skulu umsókn um efnistökuleyfi (sjá nánari leiðbeiningar í umsóknareyðublaði):
- Nafn umsækjanda, kennitala hans, heimilisfang og upplýsingar um rekstrarform.
- Fyrirhugað efnistökusvæði, kort ásamt hnitsetningu þess skal fylgja umsókn.
- Upplýsingar um stöðu skipulagsmála og stöðu varðandi málsmeðferð vegna umhverfismats.
- Upplýsingar um fyrirhugaða nýtingu, nýtingarmagn, nýtingarhraði, gildistíma sem óskað er eftir og fleira.
- Framkvæmdir tengdar nýtingu.
- Umhverfisþættir, þar með talin önnur nýting í nágrenni nýtingarsvæðis, rannsóknir sem farið hafa fram, mótvægisaðgerðir og fleira.
- Áhrifamat fyrir vatnshlot samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála.
- Drög að vöktunaráætlun.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





