Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Leyfi vegna rannsóknar eða nýtingar á örverum á jarðhitasvæðum

Leiðbeiningar fyrir umsókn um leyfi vegna rannsóknar eða nýtingar á örverum á jarðhitasvæðum

Almennt um rannsóknarleyfi

Rannsóknir og nýting örvera á jarðhitasvæðum er óheimil án leyfis Umhverfis- og orkustofnunar samkvæmt lögum nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (auðlindalög). Nánar er fjallað um kröfur vegna veitingar slíkra leyfa í reglum nr. 234/1999 um veitingu leyfa til rannsókna og nýtingar á örverum sem vinna má á jarðhitasvæðum.

Gjaldtaka 

Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að innheimta gjald fyrir þessi leyfi. Gjaldið má ekki vera hærra en nemur kostnaði við undirbúning, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar þjónustu, afgreiðslu leyfis og eftirlits með leyfishöfum, sbr. 20. gr. a. auðlindalaga. 

Eftirlit

Náttúrufræðistofnun hefur eftirlit með leyfum vegna rannsóknar eða nýtingar á örverum á jarðhitasvæðum og skal leyfishafi veita stofnuninni allar upplýsingar um sýnatökur og niðurstöður rannsókna á örverum sem safnað hefur verið á jarðshitasvæðum. 

Umsóknir

Til að sækja um rannsóknarleyfi fyrir örverur á jarðhitasvæðum skal fylla út umsóknareyðublað hér að neðan. Umsókn ásamt fylgigögnum er svo skilað með því að ýta á hnapp hér að neðan. Athugið að umsókn skal vera á íslensku í samræmi við 7. gr. reglna nr. 234/1999. 

Til að sækja um rannsóknarleyfi skal fyrst sækja og fylla út umsóknareyðublaðið hér að neðan.

Helstu gögn og upplýsingar sem fylgja skulu umsókn um rannsóknarleyfi (sjá nánari leiðbeiningar í umsóknareyðublaði): 

  1. Nafn umsækjanda, kennitala hans, heimilisfang og upplýsingar um rekstrarform.
  2. Tegund leyfis sem sótt er um.
  3. Fyrirhugað rannsóknarsvæði (sjá skilgreiningu á svæðum í viðauka við reglur nr. 234/1999).
  4. Tímalengd leyfis sem sótt er um. 
  5. Skil rannsóknarsvæða á rannsóknartímanum ef sótt er um fleiri en eitt svæði.
  6. Tímasetning rannsóknarinnar og rannsóknaráfanga.
  7. Lágmarks fjárhagslegar skuldbindingar umsækjanda, ef um leyfi til hagnýtra rannsókna er að ræða.
  8. Upplýsingar um ábyrgðarmann verkefnisins og helstu stjórnendur verkþátta.
  9. Upplýsingar um hvar rannsóknirnar eða hagnýtingin fer fram ásamt upplýsingum um aðstöðu, tæki og búnað, eins og við á.


Til að sækja um nýtingarleyfi á örverum skal umsækjandi hafa áður fengið rannsóknarleyfi, en áður en nýtingarleyfi er gefið út skal rannsóknaraðili hafa tryggt samkomulag við eiganda jarðhitasvæðisins um endurgjald fyrir notin. 

Útfylltri umsókn er skilað ásamt fylgigögnum með því að senda okkur skilaboð hér að neðan.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800