Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Virkjunarleyfi

Leiðbeiningar fyrir umsókn um virkjunarleyfi

Almennt um virkjunarleyfi

Umhverfis- og orkustofnun veitir leyfi til að reisa og reka virkjun, samkvæmt 1. mgr. 4. gr. raforkulaga nr. 65/2003.

Hvenær þarf ekki að sækja um leyfi?

Ekki þarf virkjunarleyfi fyrir: 

  • Raforkuver með uppsett afl 100 kW eða minna. 
  • Raforkuver með uppsett afl undir 1 MW, nema raforka sé afhent inn á dreifikerfi dreifiveitna eða flutningskerfi. 
  • Varaaflsstöðvar sem gegna eingöngu því hlutverki að útvega afl til eigin nota vegna bilana, skorts á flutningsgetu, orkuskorts eða annarra þátta. 


Eigendur virkjana með uppsett afl 30–1.000 kW skulu skila Umhverfis- og orkustofnun tæknilegum upplýsingum um virkjun. Einnig er skylt að tilkynna Umhverfis- og orkustofnun árlega um heildarraforkuvinnslu raforkuvera með uppsettu afli yfir 100 kW.

Í 5 og 6. gr raforkulaga (65/2003) og 4. gr. reglugerðar nr. 1040/2005 er fjallað nánar um skilyrði sem umsókn þarf að uppfylla. Umsóknargögn eru metin meðal annars með hliðsjón af þeim hagsmunum sem raforkulögin eiga að tryggja, og nánar er fjallað um í 1. viðauka, og með hliðsjón af þeim atriðum sem taka þarf á við útgáfu virkjunarleyfis (2. viðauki). Ýmsar af þeim kröfum sem gerðar eru, til dæmis um hönnun og reynslu hönnuða eru meðal annars hugsaðar út frá hagsmunum þriðja aðila (þolenda).

Gjaldtaka 

Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að innheimta gjald fyrir virkjunarleyfi og fyrir eftirlit sem stofnuninni er falið. Gjaldið má ekki vera hærra en nemur kostnaði við undirbúning, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar þjónustu, afgreiðslu leyfis og eftirlits með leyfishöfum, samanber 33. gr. raforkulaga. 

Umsóknir

Til að sækja um virkjunarleyfi skal fyrst sækja og fylla út umsóknareyðublaðið hér að neðan.

Helstu gögn og upplýsingar sem fylgja skulu umsókn um virkjunarleyfi (sjá nánari leiðbeiningar í umsóknareyðublaði): 

  1. Nafn umsækjanda, kennitala hans, heimilisfang og upplýsingar um rekstrarform. 
  2. Niðurstöður rannsókna á viðkomandi virkjunarkosti, þar á meðal upplýsingar um auðlind, upplýsingar um tæknilega getu umsækjanda, hönnunarforsendur virkjunar og fleira.
  3. Lýsing á virkjuninni, þar á meðal upplýsingar um hverfla, borholur, stíflur, fallhæð og fleira eins og við á. 
  4. Áhrifamat fyrir vatnshlot og heimild til breytingar á vatnshloti/til að víkja frá umhverfismarkmiði vatnshlots ef við á.
  5. Framkvæmdaáætlun.
  6. Fjármögnun.
  7. Samningar um tengingu við flutningskerfið eða dreifikerfi á viðkomandi svæði. 
  8. Samkomulag við landeigendur og eigendur orkulinda um endurgjald fyrir nýtingu viðkomandi auðlindar.
  9. Upplýsingar um helstu umhverfisþætti virkjunar og áhrif hennar.
  10. Upplýsingar um önnur leyfi.


Útfylltri umsókn er svo skilað ásamt fylgigögnum með því að senda okkur skilaboð hér að neðan.

Viðaukar

Viðauki 1 - Um kröfur til raforkulaganna

+

Viðauki 2 - Inntak virkjunarleyfis (6. gr. laga 65/2003)

+

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800