Leiðbeiningar um starfsleyfi
Hvað er starfsleyfi?
Starfsleyfi er skrifleg heimild til að starfrækja að öllu leyti eða að hluta tilgreindan atvinnurekstur.
Hvað gilda starfsleyfi lengi?
Heimilt er að gefa starfsleyfi út til tiltekins tíma en starfsleyfi skulu endurskoðuð reglulega eða á að minnsta kosti 16 ára fresti.
Hvað er starfsleyfisskylt hjá Umhverfis- og orkustofnun?
Starfsemi sem fellur undir viðauka I og II laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (viðauka I og IX reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirliti). Umhverfis- og orkustofnun veitir jafnframt starfsleyfi fyrir starfsemi sem fellur undir I., II. og IV. viðauka sem er staðsett er á hafi utan sveitarfélagamarka (utan netlaga).
Önnur starfsemi er starfsleyfisskyld hjá heilbrigðisnefnd viðkomandi sveitarfélags eða skráningarskyld samkvæmt viðauka við reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Sé um að ræða starfsemi á varnarsvæði gegnir Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja því hlutverki sem heilbrigðisnefndum, heilbrigðisfulltrúum og Umhverfis- og orkustofnun er ætlað að gegna, samkvæmt reglugerð nr. 823/2003 um hollustuhætti og mengunarvarnir á varnarsvæðum.
Hvað er starfsleyfisskylt hjá heilbrigðisnefndum?
Starfsemi innan sveitarfélagsmarka sem fellur undir IV. viðauka laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og viðauka X í reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirliti.
Athugið að starfsemi kann að vera háð skráningu í stað starfsleyfis hjá heilbrigðisnefnd.

Almenn umsókn um starfsleyfi
Sótt um í þjónustugátt Umhverfis- og orkustofnunar

Brennslustöð eða urðunarstaður
Sótt um í þjónustugátt Umhverfis- og orkustofnunar

Leyfi fyrir geymslu koldíoxíðs
Sótt um á vef Umhverfis- og orkustofnunar

Fiskeldi
Sótt um í þjónustugátt Matvælastofnunar

Starfsemi sem er starfsleyfisskyld hjá heilbrigðisnefndum
Sótt um á vef viðkomandi heilbrigðiseftirlits
Spurt og svarað
Hvað þarf að liggja fyrir áður en sótt er um starfsleyfi til Umhverfis- og orkustofnunar?
+Hvað telst fullnægjandi umsókn?
+Er hægt að samþætta mat á umhverfisáhrifum?
+Hvert er ferli starfsleyfisgerðarinnar?
+Hve langan tíma tekur vinnsla starfsleyfis?
+Hvað kostar nýtt starfsleyfi?
+Hvaðan koma starfsleyfisskilyrðin?
+Hvernig fer auglýsingin fram?
+Hvað er átt við með útgáfu starfsleyfis?
+Er hægt að kæra ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um útgáfu starfsleyfis?
+Ég ætla að breyta starfseminni minni, á ég að tilkynna ykkur það?
+Hvað kostar breyting á starfsleyfi?
+Starfsleyfið mitt er að renna út, hvað á ég að gera?
+Er hægt að fá undanþágu frá starfsleyfi?
+Ég vil loka starfseminni minni, hvað á ég að gera?
+Hvert er hlutverk skiptastjóra ef starfsleyfisskyld starfsemi er gjaldþrota?
+Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





