Vegna starfsdags verður móttaka á Suðurlandsbraut lokuð á fimmtudag. Hægt verður að hafa samband símleiðis. Móttakan verður svo opin samkvæmt venju á föstudag.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Bráðamengun

Viðbrögð við skyndilegri mengun hafs og stranda og hverjir bera ábyrgð á hverju.

Bráðamengun á sjó skal tilkynna til Landhelgisgæslunnar í síma 511 3333. Bráðamengun á landi skal tilkynna til lögreglu í síma 112.

Tilkynna bráðamengun

Auk símtals til Landhelgisgæslunnar eða lögreglu er hægt að senda Umhverfis- og orkustofnun upplýsingar um bráðamengun með eyðublaði á Ísland.is.

Viðbrögð við bráðamengun

Með bráðamengun er átt við skyndilegan atburð sem krefst tafarlausra viðbragða. Umhverfis- og orkustofnun hefur yfirumsjón með bráðamengun hafs og stranda og mengunaróhöppum almennt á landinu í heild. Skipulag sjálfra viðbragðanna er hins vegar skipt eftir staðsetningu mengunaróhappsins.

Slökkviliðsstjóri á hverjum stað hefur með höndum stjórn á vettvangi við mengunaróhöpp á landi samkvæmt lögum nr. 75/2000 um brunavarnir. Hafnarstjórar annast viðbrögð við bráðamengun innan hafnarsvæða en Umhverfis- og orkustofnun ber ábyrgð á viðbrögðum vegna mengunar hafs og stranda þar fyrir utan. Nánar er kveðið á um viðbrögð við bráðamengun hafs og stranda í reglugerð nr. 1010/2012.

Skilgreining á bráðamengun samkvæmt lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda er eftirfarandi: Mengun hafs og stranda sem verður skyndilega og krefst tafarlausra aðgerða.

Utan hafnarsvæða

Við óhapp sem leiðir til eða getur leitt til bráðamengunar hafs og stranda utan hafnarsvæða skal Umhverfis- og orkustofnun gera viðeigandi ráðstafanir í samræmi við viðbragðsáætlanir. Umhverfis- og orkustofnun ber ábyrgð á að aðgerðir gegn bráðamengun hefjist og annast stjórn á vettvangi. Umhverfis- og orkustofnun getur farið fram á að heilbrigðisnefnd fari á vettvang og meti umfang bráðamengunar og nauðsynlegar aðgerðir og tilkynni Umhverfis- og orkustofnun. Stofnuninni er jafnframt heimilt að fela heilbrigðisnefnd eða öðrum aðilum í umboði stofnunarinnar umsjón með aðgerðum á kostnað stofnunarinnar.

Umhverfis- og orkustofnun, Samgöngustofa og Landhelgisgæsla Íslands hafa samþykkt aðgerðaáætlun um viðbrögð við bráðamengun utan hafnarsvæða. Áætlunin fjallar um hvernig eigi að bregðast við þegar óhöpp verða á sjó er varða skip í efnahagslögsögu Íslands sem ógna siglingaöryggi eða hætta er á að valdi umhverfisstjóni og verkaskiptingu á milli stofnananna. Áætlunin er sameiginlegt stjórntæki Umhverfis- og orkustofnunar, Landhelgisgæslu Íslands og Samgöngustofu og er ætlað að tryggja fumlaust verklag og framkvæmd viðbragða vegna bráðamengunar, þegar hætta er talin á bráðamengun sem og rétta framkvæmd við notkun skipaafdrepa. Skipaafdrep, sem Samgöngustofa útnefnir, eru annars vegar innan hafna (neyðarhöfn) og hins vegar skjólgóð svæði sem eru tilgreind utan hafna.

Aðgerðaáætlunina er hægt að virkja á fjórum stigum:

  1. þegar atvik verður á sjó þar sem engin mengun er sjáanleg og engin hætta er talin á mengun
  2. þegar hætta er talin á mengun
  3. þegar mengun er sýnileg
  4. þegar skip þurfa að leita í skipaafdrep

Innan hafnarsvæða

Hafnarstjóri ber ábyrgð á og annast aðgerðir vegna mengunar innan hafnarsvæðis og ber honum að grípa til hreinsunar og annarra viðeigandi ráðstafana til að koma í veg fyrir frekara tjón vegna bráðamengunar. Hafnarstjóra ber að tilkynna Umhverfis- og orkustofnun og heilbrigðisnefnd um bráðamengun strax og vart verður við hana. Heilbrigðisfulltrúi, í umboði heilbrigðisnefndar, hefur eftirlit með hreinsunaraðgerðum og ákveður í samráði við Umhverfis- og orkustofnun hvenær árangur af hreinsun er nægur. Hafnarstjóri getur kallað eftir aðstoð Umhverfis- og orkustofnunar telji hann ástæðu til. Telji Umhverfis- og orkustofnun nauðsyn á frekari aðgerðum er stofnuninni heimilt að hlutast til um þær.

Hver höfn skal eiga og reka mengunarvarnabúnað og ber viðkomandi höfn ábyrgð á viðhaldi búnaðarins og endurnýjun hans. Þó er heimilt að hafnir á tilteknu svæði eigi og reki saman mengunarvarnabúnað. Heimilt er að fela slökkviliðsstjóra umsjón með mengunarvarnabúnaði og stjórn á vettvangi í samræmi við ákvæði laga um varnir gegn mengun hafs og stranda.

Höfnum er skipt í þrjá flokka hvað varðar viðbrögð og mengunarvarnabúnað vegna bráðamengunar samkvæmt reglugerð nr. 1010/2012. Hver höfn skal að lágmarki eiga og reka mengunarvarnabúnað í samræmi við flokkun hafnar og áhættumat hennar. Í töflunni er flokkun hafna og sá lágmarksmengunarvarnabúnaður sem hver flokkur skal eiga samkvæmt 5. grein reglugerðarinnar.

FlokkurHafnirLágmarks­mengunarvarna­búnaður
IStórar olíuhafnir, iðnaðarhafnir og stærri flutninga­hafnir. Til þessara hafna koma olíuskip sem geta borið meira en 3.000 tonn af olíu og/eða skip stærri en 5.000 brúttó­tonn. Við höfnina er olíubirgða­stöð og/eða margvísleg mengandi starfsemi.150–300 m af flot­girðingu, 1 olíu­upptöku­tæki, ísogsefni, dreifiefni.
IIMeðalstórar fiskihafnir og vöruflutninga­hafnir þar sem skip allt að 5.000 brúttó­tonn eða allt að 100 m löng koma alla jafna að bryggju.100–200 m af flot­girðingu, ísogsefni, dreifiefni.
IIISmábáta- og skemmtibáta­hafnir þar sem bátar styttri en 25 m leggjast yfirleitt að bryggju.Ísogsefni.

Notkun dreifiefna

Tilgangurinn með viðbrögðum við olíumengun er að draga úr þeim skaða sem slík mengun getur valdið. Skaðinn getur verið vistfræðilegur, svo sem á sjófugla og viðkvæm búsvæði, eða efnahagslegur, svo sem á sjávarútveg eða ferðaþjónustu. Notkun dreifiefna er ein besta aðferðin til að bregðast við olíumengun við ákveðnar aðstæður.

Hlutverk stofnana

Umhverfis- og orkustofnun

Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með framkvæmd laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda að svo miklu leyti sem ekki er mælt fyrir um annað í lögunum. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að fela tiltekna þætti eftirlitsins, sem undir stofnunina heyra, heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna eða faggiltum skoðunaraðilum. Skal í slíkum tilvikum gerður sérstakur samningur við hinn faggilta skoðunaraðila eða við hlutaðeigandi heilbrigðiseftirlit eftir því sem við á. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að fela heilbrigðisnefnd framkvæmd þvingunarúrræða samhliða eftirliti.

  • Umhverfis- og orkustofnun skal sjá um að mengun hafs og stranda sé vöktuð.
  • Umhverfis- og orkustofnun skal sjá um gerð fræðsluefnis og fræða þá sem starfa að þessum málum og gefa út leiðbeiningar og viðmiðunarreglur.

Landhelgisgæsla Íslands

Landhelgisgæsla Íslands annast eftirlit með hafsvæðum umhverfis Ísland, jafnt úr lofti sem af sjó. Landhelgisgæsla Íslands tilkynnir Umhverfis- og orkustofnun og lögregluyfirvöldum um svæði þar sem mengun getur borist á land ef hún verður vör við mengun eða grunur leikur á mengun hafs og stranda.

Sé um olíumengun að ræða er stuðst við ákveðna litaflokkun til þess að átta sig á magninu, en út frá lit olíuflekksins er hægt að áætla hvert rúmmál olíunnar er. Taflan sýnir flokkunina.

Samband á milli útlits, þykktar og rúmmáls olíubrákar

Olíu­tegundÚtlitÁætluð þykkt (mm)Áætlað rúmmál (m³/km²)
Olíu­slæðaSilfur­gljái> 0,00010,1
Olíu­slæðaÓreglu­legur gljái> 0,00030,3
Hráolía og brennslu­olíaSvart/​dökk­brúnt> 0,1100
ÞeytiBrúnt/​appelsínu­gult> 1,01.000

Mengunarvarnaráð hafna

Að afloknum hverjum sveitarstjórnarkosningum skipar ráðherra átta fulltrúa í mengunarvarnaráð hafna til fjögurra ára í senn. Umhverfis- og orkustofnun tilnefnir tvo fulltrúa og er annar þeirra formaður ráðsins. Hafnasamband Íslands tilnefnir þrjá fulltrúa, Samband íslenskra sveitarfélaga einn fulltrúa, og skal hann vera starfandi heilbrigðisfulltrúi, og Samgöngustofa og Vegagerðin einn fulltrúa hvor.

Hlutverk mengunarvarnaráðs hafna er:

  1. að vera formlegur samstarfsvettvangur Umhverfis- og orkustofnunar og hafna um málefni sem varða viðbúnað og viðbrögð við bráðamengun innan hafnarsvæða,
  2. að stuðla að samstarfi og samhæfingu milli hafna um viðbúnað, samræmingu viðbragðsáætlana og viðbragða við bráðamengun,
  3. að gera tillögu til Umhverfis- og orkustofnunar um uppbyggingu og endurnýjun á mengunarvarnabúnaði í höfnum landsins og
  4. að koma með ábendingar og tillögur um innihald viðbragðsáætlana.

Samgöngustofa

Samgöngustofa annast meðal annars eftirlit með búnaði skipa vegna mengunarvarna, samanber lög um eftirlit með skipum.

Erlent samstarf

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800