Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Fræðsla

Umhverfis- og orkustofnun og Samorka kostuðu gerð auglýsingaefnis sem öllum er frjálst að nota að vild og hvetjum við fólk til að gera slíkt.

Það er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því að með notkun á vatni þá erum við að hafa áhrif á vistkerfi vatna og sjávar og fráveitukerfi sveitarfélaga. Við berum sjálf ábyrgð á því að í fráveituna séum við ekki að losa mengandi efni og úrgang, sem bæði hefur neikvæð áhrif á umhverfi og lífríki og svo á fráveitukerfin sjálf. Fráveitukerfin þurfa að geta annað því magni fráveituvatns sem í þau berst og að geta hreinsað vatnið áður en það er losað út í viðtaka.

Verkefnið „bara piss, kúk og klósettpappír í klósettið“ er samvinnuverkefni Umhverfis- og orkustofnunar og Samorku í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisnefnda á landinu og er markmið þess að draga úr rusli í fráveitu og þar með álagi á umhverfið okkar.

Auglýsingaefni

EKKI garðúrgang í klósettið
Ekki garðúrgang
EKKI batterí í klósettið
Ekki batterí
EKKI köttinn í klósettið
Ekki köttinn
EKKI smokka í klósettið
Ekki smokka
EKKI eyrnapinna í klósettið
Ekki eyrnapinna
EKKI tyggjó í klósettið
Ekki tyggjó
EKKI gullfiskinn í klósettið
Ekki gullfiskinn
EKKI hamsturinn í klósettið
Ekki hamsturinn
EKKI túrtappa í klósettið
Ekki túrtappa

Myndbönd

Bara piss, kúk og klósettpappír í klósettið
Hér er myndband frá Irish Water um áhrif skólplosunar á fólk, losun út í hafnir og aðgerðir til að stöðva það. Einnig er fjallað um áhrif plasts og rusls í fráveitu á umhverfi og dýr.
Ertu búinn með klósettpappírinn og grípur í servíettu eða eldhúspappírinn í staðinn? Það getur auðveldlega valdið martröð í pípunum. Hjólaðu frekar út í búð eftir meiri klósettpappír.
Sex rútur af fitu, blautþurrkur og rusli í fráveitukerfinu í litlum bæ sem kallast Sidmouth á Englandi.

Auglýsingar frá veitum

Bæði Orkuveita Reykjavíkur og Norðurorka á Akureyri hafa unnið ötullega að því að fá fólk til að hætta að setja úrgang í klósettin. Hér má sjá dæmi um auglýsingar frá þeim.

Auglýsing: Óleyfilegt niðurhal
Óleyfilegt niðurhal
Auglýsing: Klósettið er ekki ruslafata
Klósettið er ekki ruslafata

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800