Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Fráveitan og umhverfið

Aukin hreinsun fráveituvatns dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda

Í tengslum við aðgerðir í fyrstu vatnaáætlun Íslands lét Umhverfis- og orkustofnun vinna greiningu á umfangi losunar gróðurhúsalofttegunda vegna losunar fráveituvatns. Til að meta þá losun var stuðst við þær forsendur sem notaðar eru til útreikninga á losun skólps í loftslagsbókhaldi Íslands og niðurstöður Stöðuskýrslu fráveitumála ársins 2018. Miðað við núverandi losun á fráveituvatni má ætla að losun CO₂-ígilda á ári sé um það bil 29 þúsund tonn.

Í dag er fráveituvatn að mestu losað í sjó, þar sem reikna má með losun gróðurhúsalofttegunda, annars vegar vegna losunar metans í loftfirrðum aðstæðum og hins vegar vegna losunar N₂O. Magn þessarar losunar er ekki fyllilega þekkt og getur hún verið háð margvíslegum aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Óvissan á losun frá strandsvæðum er því metin töluverð í þessari greiningu.

Auk mats á losun við núverandi aðstæður var metið hver losun gróðurhúsalofttegunda verður með aukinni söfnun á seyru eftir því í hvaða farveg hún fer:

  1. Losun við óbreytt ástand
  2. Aukin seyrusöfnun til urðunar
  3. Aukin seyrusöfnun og seyra er nýtt til landgræðslu
  4. Aukin seyrusöfnun og 50% nýtt til landgræðslu og 50% fer í urðun

Ef öll þéttbýli sem losa meira en 2.000 persónueiningar myndu hreinsa fráveituvatn þannig að auk grófhreinsunar, þá lækki einnig magn BOD₅ og svifagna í skólpi þá rúmlega áttfaldast magn seyru (úr um 1.300 tonnum í 10.400 tonn af þurrefnum á ári). Þá sýnir greiningin að við þessa auknu söfnun seyru á landi dregst losun gróðurhúsalofttegunda saman um tæp 630 tonn af CO₂ ígildi á ári ef seyran yrði urðuð og um 3.100 tonn af CO₂ ígildi á ári ef seyran yrði nýtt til landgræðslu.

Gera má ráð fyrir enn frekari samdrátti ef þéttbýlin færu í tveggja þrepa hreinsun og seyran yrði nýtt til landgræðslu eða um 11.770 tonn CO₂ ígilda á ári. Enn meiri ávinningur fælist í því að skipta út tilbúnum áburði fyrir seyru.

Súluritið hér fyrir neðan sýnir hver losun gróðurhúsalofttegunda yrði miðað við mismunandi farvegi seyru a) óbreytt ástand, b) aukin söfnun og urðun seyru og c) aukin söfnun seyru og hún nýtt til landgræðslu. Til viðbótar er hér framsett sá munur ef að öll umrædd þéttbýlissvæði myndu fara í tveggja þrepa hreinsun og b TÞ) urða seyruna eða c TÞ) nýta hana til landgræðslu.

Súlurit: losun gróðurhúsalofttegunda frá fráveitu eftir farvegi seyru

Á meðan þessi greining sýnir að aukin söfnun seyru geti dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og dregið úr þörf á innflutningi á tilbúnum áburði. Þá þarf einnig að hafa gæði seyrunnar í huga við nýtingu hennar, hvort hún innihaldi til dæmis örplast, lyfjaleifar og önnur efni sem ekki er æskilegt að verði til dæmis nýtt í landbúnað án þess að seyran sé hreinsuð af þeim fyrst.

Frekari upplýsingar má sjá í greinargerðinni:

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800