Kröfur um hreinsun fráveituvatns
Löggjöf um fráveitumál og hreinsun fráveituvatns er einn af mikilvægustu þáttum umhverfisstjórnunar. Eitt lykilatriðanna er sú krafa að koma á kerfisbundinni söfnun, meðhöndlun og hreinsun á skólpi frá íbúðarbyggð og atvinnurekstri til að vernda almenning og umhverfið gegn mengun af völdum skólps. Í því skyni hefur Ísland innleitt tilskipun Evrópuþingsins nr. 91/271/EBE í reglugerð nr. 1450/2025 um fráveitur og skólphreinsun.
Almenn krafa um hreinsun á skólpi er tveggja þrepa hreinsun nema ef viðtakar hafa verið skilgreindir sem síður viðkvæmir eða losun fráveituvatns er út í viðkvæman viðtaka.
Í reglugerðinni voru settir fram tímafrestir fyrir hreinsun á skólpi. Kröfurnar um hreinsun eru síðan mismiklar eftir hæfni viðtaka sem þéttbýli losar í og fjölda persónueininga frá þéttbýli.
- Fyrir 31. desember 2005 áttu öll þéttbýli sem losa 2.000 persónueiningar eða meira í ferskvatn og ármynni að vera komin með hreinsun sem og öll þéttbýli sem losa 10.000 persónueiningar eða meira í strandsjó.
- Þéttbýli sem losa minna en 2.000 persónueiningar í yfirborðsvatn/ármynni og minna en 10.000 persónueiningar í sjó áttu að vera komin með viðunandi hreinsun fyrir 31. desember 2005.

Heilbrigðisnefndir gefa út starfsleyfi vegna fráveitu- og hreinsibúnaðar sem notaður er til meðhöndlunar, hreinsunar og losunar á skólpi frá þéttbýli samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 798/1999 og skulu kröfur um hreinsun og umhverfismarkmið sem fráveitukerfið þarf að ná koma þar fram. Heilbrigðiseftirlit fer einnig með eftirlit með öllum fráveitum samkvæmt 5. gr. reglugerðarinnar.
Almennt má skipta hreinsun á fráveituvatni í fjögur stig.
- Forhreinsun (grófhreinsun) þar sem rusl, sandur, fita og annað fast efni er hreinsað frá.
- Eins þreps hreinsun þar sem föst efni, yfirleitt lífrænar agnir úr fráveituvatninu eru látnar setjast til eða eru síaðar burt.
- Tveggja þrepa hreinsun er líffræðileg hreinsun sem á að brjóta niður lífræna efnið enn frekar. Í kjölfarið er það botnfellt aftur.
- Ítarleg hreinsun aðallega til að ná fram enn frekari hreinsun á fosfór og köfnunarefni.
Viðunandi hreinsun
Notast skal við viðunandi hreinsun þegar þéttbýli losar:
- Minna en 2.000 persónueiningar í ferskvatn og ármynni.
- Minna en 10.000 persónueiningar í strandsjó.
Með hreinsun skólpsins skal tryggt að viðkomandi svæði uppfylli umhverfismörk og gæðamarkmið sem um það gilda í stað losunarmarka sem gilda fyrir skólplosun fyrir þéttbýli yfir þessum mörkum. Viðunandi hreinsun getur verið allt frá grófhreinsun til ítarlegrar hreinsunar eftir því hversu viðkvæmur viðtakinn er.
Hreinsunarkröfur
Í fylgiskjali 1.A. eru sett fram gæðamarkmið sem fara skal eftir til að draga úr mengun vegna losunar á skólpi. Kröfur þessar eiga alltaf við þegar um er að ræða losun um útrásir í viðtaka. Um er að ræða einu hreinsunarkröfur sem settar eru fram fyrir viðunandi hreinsun samkvæmt reglugerð en heilbrigðisnefnd getur sett frekari kröfur í starfsleyfi þurfi slíkt.
Fyrrnefnd gæðamarkmið eru þau að við útrásir þar sem fráveituvatn er leitt í viðtaka sem ekki njóta sérstakrar verndar skuli hvergi vera:
- Set eða útfellingar.
- Þekjur af rotverum (bakteríur og sveppir).
- Olía eða froða.
- Sorp eða aðrir aðskotahlutir.
- Efni sem veldur óþægilegri lykt, lit eða gruggi.
Hér þarf því hreinsun á fráveituvatni sem í það minnsta kemur í veg fyrir að framangreindir þættir séu losaðir út í viðtakann og gætu safnast þar upp. Hér væri því eðlilegt að beita að minnsta kosti grófhreinsun þar sem úrgangur og annað væri síað frá.
Eins þreps hreinsun
Almennt á við krafa um tveggja þrepa hreinsun á skólpi þegar losun er yfir 2.000 persónueiningar í ferskvatn og ármynni og yfir 10.000 persónueiningar í strandsjó. Frá þeirri kröfu eru tvær undanþágur, annars vegar fyrir minni hreinsun og hins vegar fyrir meiri hreinsun eftir því með hvaða hætti viðtakarnir eru skilgreindir.
Síður viðkvæmur viðtaki er ármynni og strandsjór þar sem endurnýjun vatns er mikil og losun tiltekinnar mengunar er ekki talin hafa skaðleg áhrif á umhverfið. Sjór eða hafsvæði getur talist síður viðkvæmt svæði ef losun skólps hefur ekki skaðleg áhrif á umhverfið vegna formfræðilegra, vatnafræðilegra eða annarra sérstakra aðstæðna í vatninu.
Samkvæmt reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp geta sveitarstjórnir sótt um undanþágu frá tveggja þrepa hreinsun á skólpi (vægari losunarkröfur) gegn því að vakta viðtakann fyrir mögulegum neikvæðum áhrifum. Slíkt er hægt þegar um er að ræða:
- Þéttbýli sem losa milli 10.000–150.000 persónueiningar í sjó og þéttbýli sem losa milli 2.000 og 10.000 persónueiningar í ármynni ef rannsóknir sýna að losun skólps hefur ekki skaðleg áhrif á umhverfið.
- Þéttbýli sem losa meira en 150.000 persónueiningar ef auk þess er hægt að sýna fram á að þróaðri hreinsiaðferðir hafi engin umhverfisbætandi áhrif.
Til þess að fá viðtaka skilgreindan sem síður viðkvæman þarf sveitarstjórn að senda tillögu um slíka skilgreiningu til Umhverfis- og orkustofnunar. Eigandi fráveitu skal í samráði við heilbrigðisnefnd rannsaka ítarlega áhrif skólps á umhverfið og skila gögnum til Umhverfis- og orkustofnunar sem staðfesta góða hæfni viðtakans til að taka við og eyða skólpi.
Skilgreining á síður viðkvæmum svæðum skal endurskoða á að minnsta kosti 4 ára fresti. Verði viðtaki ekki lengur skilgreindur síður viðkvæmt vatnasvæði skal tveggja þrepa hreinsun komið á innan sjö ára frá því að skilgreiningu er breytt.
Hreinsunarkröfur fyrir eins þreps hreinsun
Þegar eins þreps hreinsun á við, skal skólp að lágmarki hreinsað þannig að BOD₅ lækki um 20% og heildarmagn svifagna lækki um 50% áður en fráveituvatnið er losað út í viðtaka.
Við útrásir þar sem fráveituvatn er leitt í viðtaka sem ekki njóta sérstakrar verndar má hvergi vera:
- Set eða útfellingar.
- Þekjur af rotverum (bakteríur og sveppir).
- Olía eða froða.
- Sorp eða aðrir aðskotahlutir.
- Efni sem veldur óþægilegri lykt, lit eða gruggi.
Tveggja þrepa hreinsun
Meginkrafan í hreinsun á skólpi er að fráveituvatn skuli hreinsað með tveggja þrepa hreinsun þegar losun er:
- Meiri en 2.000 persónueiningar í ferskvatn og ármynni.
- Meiri en 10.000 persónueiningar í strandsjó.
Á kröfu um tveggja þrepa hreinsun eru þó undanþágur en þar sem viðtaki hefur verið skilgreindur síður viðkvæmur (að undangenginni rannsókn á áhrifum skólps á viðtaka og staðfestingu þess efnis frá Umhverfis- og orkustofnun) er nægjanlegt að notast við eins þreps hreinsun (sjá gr. 20.3 og 20.4 í fyrrgreindri reglugerð). Þar sem um er að ræða viðkvæm svæði þarf meira en tveggja þrepa hreinsun.
Hreinsunarkröfur
Tveggja þrepa hreinsun er meiri hreinsun en eins þreps hreinsun og felur í sér líffræðilega hreinsun sem fylgt er eftir með botnfellingu eða öðru ferli samanber kröfur í I. Viðauka, B-hluta og 1. töflu. Rotþró og siturlögn telst til tveggja þrepa hreinsunar en þar fer til dæmis fram botnfelling og súrefnislaust niðurbrot á lífrænu efni í rotþró og í siturlögn fer fram síun og frekara niðurbrot örvara.
Tafla 1 í reglugerð 798/1999. Losunarmörk fyrir skólp frá skólphreinsistöðvum fyrir þéttbýli (tveggja þrepa).
| Færibreytur | Styrkur | Lágmarkslækkun miðað við hundraðshluta |
|---|---|---|
| Líffræðileg súrefnisþörf (BOD við 20°C) | 25 mg/l O₂ | 70 til 90 |
| Efnafræðileg súrefnisþörf (COD) | 125 mg/l O₂ | 75 |
| Heildarmagn svifagna (er valfrjáls krafa) | 35 mg/l 35 vegna 22. gr. (meira en 10.000 persónueiningar). 60 vegna 22. gr. (2.000 – 10.000 persónueiningar) | 90 90 vegna 22. gr. (meira en 10.000 persónueiningar) 70 vegna 22. gr. (2.000 – 10.000 persónueiningar) |
Ítarleg hreinsun
Þar sem þéttbýli eru staðsett á vatnasviði viðkvæmra svæða og fráveituvatn getur valdið mengun á svæðinu skal fara fram frekari hreinsun en tveggja þrepa. Einnig ef viðtaki nýtur sérstakrar verndar vegna nytja af ýmsu tagi, lífríkis, jarðmyndana eða útivistar, auk annarra sérstakra vatnsverndunarsvæða, samanber II. viðauka A lið. Umhverfis- og orkustofnun má setja mismunandi kröfur til skólphreinsistöðva á sama vatnasvæðinu ef markmiði um 75% heildarlækkun á köfnunarefni og fosfór er náð. Hér má nefna vatnasvið Mývatns sem dæmi.
Hreinsunarkröfur
Frekari hreinsun á fráveituvatni er þegar, til viðbótar við tveggja þrepa hreinsun (lækkun á BOD₅ og svifögnum) er gerð krafa um lækkun á heildarstyrk fosfórs og köfnunarefnis. Frekari hreinsun getur einnig átt við hreinsun sýkla eða annarra mengunarefna svo sem lyfjaleifa og örplasts.
Hreinsun á fráveituvatni í samræmi við frekari hreinsun skal uppfylla kröfur í 1. viðauka, B-hluta og 2. töflu í reglugerð um fráveitur og skólp.
Tafla 2. í reglugerð 798/1999. Losunarmörk fyrir skólp frá skólphreinsistöðvum fyrir þéttbýli til viðkvæmra svæða.
| Færibreytur | Styrkur | Lágmarkslækkun miðað við hundraðshluta |
|---|---|---|
| Heildarstyrkur fosfórs | 2 mg/l P (10.000 – 100.000 persónueiningar) 1 mg/l P (meira en 100.000 persónueiningar) | 80 |
| Heildarstyrkur köfnunarefnis | 15 mg/l N (10.000 – 100.000 persónueiningar) 10 mg/l N (meira en 100.000 persónueiningar) | 70–80 |
Fylgiskjal 4 í reglugerð 798/1999. Losunarmörk sem gilda um hreinsun skólps frá svæðum utan þéttbýlis á viðkvæmum svæðum.
| Færibreytur | Styrkur | Lágmarkslækkun miðað við hundraðshluta |
|---|---|---|
| Heildarstyrkur fosfórs | 2 mg/l P frá og með 50 persónueiningar | 80 |
| Heildarstyrkur köfnunarefnis | 15 mg/l N frá og með 50 persónueiningar | 70–80 |
Minni fráveitur
Töluverð þróun hefur orðið á fráveitulausnum og eru nú ýmsar lausnir í boði, bæði rotþrær og siturbeð sem og tilbúnar hreinsistöðvar þar sem öll hreinsunin fer fram í einni einingu. Þá mætti líka skoða annars konar lausnir svo sem brennslusalerni, vatnssparandi salerni og hreinsun með tilbúnu votlendi.
Þegar velja á fráveitulausn þarf að hafa ýmsa þætti í huga svo sem umhverfi, staðsetningu hreinsivirkis, nálægð við grunnvatn og fleira. Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út nýjar leiðbeiningar til aðstoðar við val á fráveitulausnum og umhirðu þeirra.
Meginreglan um hreinsun á skólpi er tveggja þrepa hreinsun frá einstaka húsum nema fráveituvatn sé losað í viðtaka sem telst viðkvæmur, en þá geta aðrar og strangari reglur átt við.
Heilbrigðisnefndir hafa eftirlit með fráveitum og þegar fráveitulausn er valin skal fá leyfi frá heilbrigðisnefnd. Hreinsivirki fráveitu eiga að koma fram á lóðaruppdrætti húsa samkvæmt byggingareglugerð sem er nauðsynlegt til að auðvelda eftirlit og losun á seyru. Einnig þarf að gæta þess að fá fagaðila til að sjá um frágang hreinsivirkis og það sama á við þegar kemur að því að losa úr því.
Hreinsivirki fráveitu skulu vera vottuð samkvæmt staðlinum ÍST EN 12566.
Eftirlitsmælingar
Í fráveitu er verið að losa ýmis konar mengandi efni sem hægt er að draga úr með hreinsun á skólpi og virku eftirliti með hreinsuninni og vöktun á áhrifum á umhverfi. Markmið reglugerðar nr. 798/1999 um fráveitur og skólp er að vernda almenning og umhverfi, gegn mengun af völdum skólps og þar eru kröfur um hreinsun, eftirlit og vöktun settar fram.
Sveitarfélög bera ábyrgð á uppbyggingu og rekstri fráveitna og eiga þar af leiðandi að tryggja hreinsun fráveituvatns. Heilbrigðisnefndir bera ábyrgð á eftirliti með fráveitu ásamt því að gefa út starfsleyfi.
Kröfur sem settar eru fram um eftirlitsmælingar og vöktun vegna fráveitu taka mið af magni skólps og þess viðtaka sem skólpið er losað í.
Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út eftirfarandi leiðbeiningar til þess að auðvelda og samræma eftirlitsmælingar og vöktun í viðtaka vegna fráveitu. Leiðbeiningarnar eiga við fráveitur sem losa meira en 50 persónueiningar og er þar farið yfir þær mismunandi kröfur sem gerðar eru til hreinsunar á skólpi:
- Viðeigandi hreinsun
- Eins þreps hreinsun
- Tveggja þrepa hreinsun
- Ítarleg hreinsun
Frekari upplýsingar má finna í leiðbeiningunum:
Í eftirfarandi töflum má sjá helstu kröfur sem gerðar eru til hreinsunar á skólpi:
Tafla 1: Viðeigandi hreinsun – kröfur
| Mæliþættir | Kröfur um hreinsun |
|---|---|
| Mæliþættir valdir eftir aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Grófhreinsun – gæðamarkmið við útrásir (fylgiskjal 1) Eins þreps hreinsun – BOD₅ og svifagnir Tveggja þrepa hreinsun – BOD₅ og COD (svifagnir) Ítarleg hreinsun – BOD₅, COD, fosfór og köfnunarefni (svifagnir). | Eftir aðstæðum þarf að beita grófhreinsun, eins þreps hreinsun, tveggja þrepa hreinsun eða ítarlegri hreinsun. Í fylgiskjali 1 í reglugerð um fráveitur og skólp eru sett fram eftirfarandi gæðamarkmið. Við útrásir þar sem fráveituvatn er leitt í viðtaka sem ekki njóta sérstakrar verndar má hvergi vera: – Set eða útfellingar. – Þekjur af rotverum (bakteríur og sveppir). – Olía eða froða. – Sorp eða aðrir aðskotahlutir. – Efni sem veldur óþægilegri lykt, lit eða gruggi. |
Tafla 2: Mæliþættir og kröfur til eins þreps hreinsunar
| Mæliþættir | Lágmarkslækkun (miðað við styrk aðveituskólps) | Kröfur um hreinsun |
|---|---|---|
| BOD₅ (líffræðileg súrefnisþörf) | Lækkun um að minnsta kosti 20% áður en skólp er losað út í viðtaka | Til viðmiðunar þá hafa Norðmenn sett fram mæliþáttinn styrk í gr. 14.2 í mengunarvarnareglugerð sinni. Þá skal styrkur BOD₅ vera lægri en 40 mg O₂/l við losun. |
| Svifagnir (heildarmagn) | Lækkun um að minnsta kosti 50% áður en skólp er losað út í viðtaka | Til viðmiðunar er styrkur í mengunarvarnareglugerð Noregs. Styrkur svifagna skal vera lægri en 60 mg SS/l við losun. |
Tafla 3: Tveggja þrepa hreinsun – kröfur (tafla 1 í reglugerð um fráveitur og skólp)
| Mæliþættir | Lágmarkslækkun (miðað við styrk aðveituskólps) | Kröfur um hreinsun |
|---|---|---|
| BOD₅ (líffræðileg súrefnisþörf) | 70 til 90% 40% á hálendum svæðum | 25 mg/l O₂ |
| COD (efnafræðileg súrefnisþörf) | 75% | 125 mg/l O₂ |
| Svifagnir (heildarmagn) | 90% (krafan er valfrjáls nema á hálendum svæðum). 90% ef losun er meiri en 10.000 persónueiningar 70% ef losun er 2.000–10.000 persónueiningar | 35 mg/l (krafan er valfrjáls nema á hálendum svæðum) 35 mg/l ef losun er meiri en 10.000 persónueiningar 60 mg/l ef losun er 2.000–10.000 persónueiningar |
Tafla 4: Ítarleg hreinsun – kröfur (tafla 2 í reglugerð um fráveitur og skólp)
| Mæliþættir | Lágmarkslækkun (miðað við styrk aðveituskólps) | Kröfur um hreinsun |
|---|---|---|
| BOD₅ (líffræðileg súrefnisþörf) | 70 til 90% 40% á hálendum svæðum | 25 mg/l O₂ |
| COD (efnafræðileg súrefnisþörf) | 75% | 125 mg/l O₂ |
| Svifagnir (heildarmagn) | 90% (krafan er valfrjáls nema á hálendum svæðum). 90% losun meiri en 10.000 persónueiningar 70% losun er 2.000–10.000 persónueiningar | 35 mg/l (krafan er valfrjáls nema á hálendum svæðum) 35 mg/l ef losun er meiri en 10.000 persónueiningar 60 mg/l ef losun er 2.000–10.000 persónueiningar |
| Heildarstyrkur fosfórs (P) | 80% Kröfur miða við ársmeðalstyrk. | 2 mg/l P fyrir losun 10.000–100.000 persónueiningar 1 mg/l P frá og með 100.000 persónueiningum Kröfur miða við ársmeðalstyrk. |
| Heildarstyrkur köfnunarefnis (N) (heildarsumma Kjeldahl-köfnunarefnis (lífrænt köfnunarefni, nítrat-, nítrít- og ammóníak-köfnunarefni)) | 70–80% Kröfur miða við ársmeðalstyrk. | 15 mg/l N ef losun er 10.000–100.000 persónueiningar 10 mg/l N frá og með 100.000 persónueiningum Kröfur miða við ársmeðalstyrk. |
Tafla 5: Settjarnir – kröfur um hreinsun (viðauki I)
| Mæliþættir | Styrkur | Frekari upplýsingar |
|---|---|---|
| Svifagnir | 150 mg/l | Greining á skólpi frá hreinsitjörnum skal gerð með því að nota síuð sýni; styrkur heildarmagns svifagna í ósíuðum vatnssýnum skal þó ekki fara yfir 150 mg/l. |
Erlendar upplýsingar
Erlendar upplýsingar um lítil skólphreinsimannvirki og skólphreinsun á svæðum þar sem ekki er hægt að tengjast fráveitu.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





