Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Leiðbeiningar

Útreikningar á magni skólps frá þéttbýlum – fjöldi persónueininga

Umhverfis- og orkustofnun hefur látið gera útreikniskjal fyrir persónueiningar sem ætlað er að auðvelda og samræma aðferðir við útreikninga á fjölda persónueininga fyrir þéttbýli.

Eftirfarandi uppsprettur skólps skal telja með í útreikningum á skólpmagni í þéttbýli:

  • Allt skólp frá íbúum og fólki sem ekki býr á staðnum og mögulegar árstíðabundnar breytingar.
  • Allt skólp (húsaskólp og iðnaðarskólp) innan þéttbýlis sem losar í fráveitu sveitarfélags.
  • Allt skólp (húsaskólp og iðnaðarskólp) innan þéttbýlis sem ekki er tengt fráveitukerfi en ætti að vera það, til dæmis sumarbústaðir, gistiheimili, einstök ótengd hús.
  • Skólp frá iðnaði samkvæmt III. viðauka í reglugerð nr. 798/1999, sem hefur eigin útrás og fráveitukerfi, skal ekki telja með í skólpmagni þéttbýlis nema þar sem viðtaki hefur verið skilgreindur sem viðkvæmur.

Skilgreining síður viðkvæmra svæða

Sveitarfélög sem losa skólp í sjó og ármynni geta óskað eftir því að fá viðtakann skilgreindan sem síður viðkvæman að undangengnum rannsóknum á hæfni viðtakans við að taka við og dreifa skólpi og vöktun á áhrifum skólps á fjögurra ára fresti.

Aðrar leiðbeiningar

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800