Unnið er að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar og eru þeir tímabundið óaðgengilegir. Við biðjumst velvirðingar á því.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Losun ferðasalerna

Góð ráð um losun ferðasalerna

Úrgangur frá ferðasalernum inniheldur bakteríur og efni sem geta verið skaðleg heilsu og umhverfi.

  • Einungis má losa salernisúrgang á sérstökum losunarstöðum.
  • Aldrei nota ferskvatnsslöngu til að skola ferðasalerni eða niðurfall.
  • Notum hanska eða spritt á hendur til að koma í veg fyrir bakteríusmit.
  • Ferðasalerni eru eingöngu fyrir piss, kúk og klósettpappír. Mikilvægt er að nota eingöngu klósettpappír sem er ætlaður ferðasalernum.
  • Notum vistvæn og lífbrjótanleg hreinsiefni. Forðumst að nota klór eða hreinsiefni sem innihalda formaldehýð eða fosfat.
  • Ef hægt er, losum  eldhús- og sturtuvatn í annan farveg en rotþró eða safntank ætluðum salernisúrgangi.
Sem PDF skjal
Losunarstaðir ferðasalerna á höfuðborgarsvæðinu

Losunarstaðir á Íslandi

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800