Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Framkvæmd og skipulagning vöktunar

Helsti tilgangur vöktunar vatnshlota samkvæmt stjórn vatnamála er að afla gagna til að meta ástand þeirra. Í tilfelli yfirborðsvatnshlota skal meta efnafræðilegt og vistfræðilegt ástand. Í tilfelli grunnvatnshlota er efnafræðilegt ástand og magnstaða metin. Mikilvægt er að vakta þá gæðaþætti sem samþykktir hafa verið til að segja til um ástand vatnsins samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.

Þegar hefja á starfsemi eða framkvæmdir skal gera áhrifamat á vatnshlot og skipuleggja vöktun þess í kjölfarið.

Skipulagning vöktunar

Við skipulagningu vöktunar er mikilvægt að þekkja áhrif starfsemi eða framkvæmda á vatnshlot. Tíðni vöktunar, val á vöktunarstöðum og val á gæðaþáttum þarf að vera í samræmi við þau áhrif sem vænta má.

Gera þarf staðbundnar vöktunaráætlanir fyrir hvert vatnshlot sem á að vakta. Í lýsingunni skulu vera upplýsingar um vatnshlotið sem á að vakta:

  • Heiti og númer vatnshlots
  • Umhverfismarkmið vatnshlotsins
  • Hver framkvæmir sýnatökuna
  • Dagsetning sýnatöku
  • Í hvaða tilgangi vöktun fer fram
  • Hvaða gæða- og matsþættir eru vaktaðir
  • Yfirlitsmynd yfir vöktunarsvæði og vöktunarstaði
  • Listi yfir sýnatökustaði hnitsettir með WGS84 (sama og Google map notar)
  • Fjölda sýnatökustöðva
  • Fjöldi sýna
  • Tíðni vöktunar
  • Ýmis ítaratriði (ljósmyndir, lýsing á aðstæðum, veðuraðstæður og svo framvegis)
  • Hvert niðurstöðum vöktunar er skilað

Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar fyrir gerð vöktunaráætlunar samkvæmt stjórn vatnamála.

Leiðbeiningar við sýnatökur

Við vöktun vatnshlota er mjög mikilvægt að:

  • Notast sé við viðurkennda aðferðafræði við alla framkvæmd vöktunar.
  • Fylgja þeim leiðbeiningum sem hafa verið gefnar út.

Þannig er hægt að tryggja áreiðanleika gagna og samanburðarhæfni niðurstaðna. Leiðbeiningar við sýnatökur eru byggðar á samevrópskum stöðlum og hafa verið aðlagaðar að íslenskum aðstæðum.

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar sem nota skal við sýnatökur á líffræðilegum og eðlisefnafræðilegum gæðaþáttum strandsjávar, straumvatna og stöðuvatna. Athugið að samskonar sýnatökuaðferðir er hægt að nota fyrir sýnatökur í árósavatni.

EfniLeiðbeiningarUpptaka
Kynning um stjórn vatnamála og tilgangi vöktunar vegna laga um stjórn vatnamála (fræðslufundur haldinn í maí 2023)Upptaka
Kynning á ástandsflokkun vatnshlota (fræðslufundur haldinn í maí 2023)Upptaka
Leiðbeiningar um sýnatökur á liffræðilegum og eðlisefnafræðilegum gæðaþáttum í strandsjó ásamt upptökum af fræðslufundi
Leiðbeiningar um söfnun sýna til mælinga á blaðgrænu a og næringarefnum í sjóLeiðbeiningarUpptaka
Leiðbeiningar um söfnun sýna til greininga á botnlægum sjávarhryggleysingjum á mjúkum botniLeiðbeiningarUpptaka
Leiðbeiningar fyrir vettvangskönnun á botnþörungum á hörðum botni í strandsjóLeiðbeiningarUpptaka
Leiðbeiningar um sýnatökur liffræðilegum og eðlisefnafræðilegum gæðaþáttum í straum- og stöðuvötnum
Leiðbeiningar um söfnun vatnssýna og mælingar með handmælum á eðlisefnafræðilegum gæðaþáttum í straum- og stöðuvötnumLeiðbeiningarUpptaka
Leiðbeiningar um söfnun sýna til greininga á hryggleysingjum og söfnun á púpuhömum rykmýs í straum- og stöðuvötunuLeiðbeiningarUpptaka
Leiðbeiningar um söfnun sýna til mælinga á blaðgrænu a í straum- og stöðuvötnum, auk mælinga á blaðgrænu a með handmæliLeiðbeiningarUpptaka
Leiðbeiningar fyrir gróðurkönnun í stöðuvötnumLeiðbeiningarUpptaka
Leiðbeiningar um sýnatökur forgangsefna í vatni
Leiðbeiningar um sýnatökur forgangsefnaLeiðbeiningar
Leiðbeiningar um eftirlitsmælingar og vöktun vegna fráveituLeiðbeiningar
Leiðbeiningar um sýnatökur í setiLeiðbeiningar

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800