Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Strandhreinsun Íslands

Átak í hreinsun strandlengjunar

Um verkefnið

Strandhreinsun Íslands er átak í að hreinsa strandlengjuna af plasti og öðrum úrgangi. 

Hreinn sjór er mikilvægur fyrir Ísland, fyrir náttúruvernd, lífríkið og atvinnustarfsemi í landinu. Strandhreinsanir stuðla að verndun hafsins, auka vitund almennings um plastmengun og efla samfélagslega þátttöku í umhverfisvernd. Strandlengjan er um 5000 km að lengd og er þetta tilraun til þess að hreinsa hana með kerfisbundnum hætti. 

Verkefnið var upphaflega sett í gang frá árunum 2021 - 2025. Verkefnið byggði á aðgerð 17 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum, Úr viðjum plastsins. Nú hefur það verið framlengt um þrjú ár og er í gildi frá 2026 - 2028.

Hvernig er tekið þátt?

  • Velja sér bút af strandlengju Íslands á korti.
  • Taka bútinn frá.
  • Fara á ströndina og hreinsa. 
  • Skrá inn niðurstöður að hreinsun lokinni. 
  • Niðurstöður verða sýnilegar öllum á kortinu.
Taka frá strandlengju

Hverjir geta tekið þátt?

Allir geta tekið þátt!

Almenningur, fyrirtæki, félagasamtök, skólahópar og fleiri.

Er hægt að fá styrk?

Lögaðilar (til dæmis félagasamtök eða áhugamannafélög) geta sótt um styrk til verkefna sem felast í hreinsun strandlengjunnar. 

Umhverfis- og orkustofnun mun úthluta styrkjum árin 2026, 2027 og 2028. Næsta úthlutun er áætluð í mars 2026 og verður auglýst sérstaklega.

Hvað á að hreinsa?

Markmiðið er að hreinsa allt rusl af strandlengjunni og koma því í réttan farveg. 

Til dæmis ýmisskonar plastrusl eins og plastpoka, -flöskur, -tappa, -rör og fleira. Einnig er algengt að finna skothylki, dekk, reipi, fiskikör, blautþurrkur, áldósir og margt fleira.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800