Lagnir í sjó
Lagning sæstrengja og neðansjávarleiðslna er háð samþykki Umhverfis- or orkustofnunar samkvæmt lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda og reglugerð nr. 600/2018 um heimild til lagningar sæstrengja og neðansjávarleiðslna. Framkvæmdir skulu samræmast skipulagi samkvæmt skipulagslögum eða lögum um skipulag haf- og strandsvæða.
Með umsókn til Umhverfis- or orkustofnunar um lagningu sæstrengs eða neðansjávarleiðslu skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar um eins og við á hverju sinni:
- Lýsing á umfangi framkvæmdar og umfangi einstakra framkvæmdaþátta og uppdrættir af staðsetningu og legu.
- Upplýsingar um gerð, tegund og tilgang lagningar viðkomandi sæstrengs eða neðansjávarleiðslu.
- Upplýsingar um hvernig framkvæmd fellur að gildandi skipulagsáætlunum eða skipulagsstefnu á viðkomandi svæði.
- Lýsing á staðháttum á framkvæmdarsvæði.
- Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum eða ákvörðun Skipulagsstofnunar um að framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Telji Umhverfis- og orkustofnun að upplýsingar í umsókn séu ófullnægjandi, eftir að hafa gefið framkvæmdaraðila kost á úrbótum, skal stofnunin vísa umsókn frá skriflega og gera grein fyrir þeim þáttum sem vanreifaðir eru.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





