Varp í hafið
Vegna viðhalds og þróunar á höfnum er nauðsynlegt að dýpka þær. Sumt af því efni sem er tekið upp (dýpkunarefni) getur verið mengað af þungmálmum, þrávirkum lífrænum efnum eða öðrum mengunarefnum.
Samkvæmt OSPAR samningnum um verndun hafrýmis Norðaustur Atlantshafsins og 9. gr. laga nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda er óheimilt að varpa dýpkunarefni í hafið. Í 9. gr. laganna kemur þó fram að Umhverfis- or orkustofnun geti veitt leyfi til að meðal annars dýpkunarefnum sé varpað í hafið að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar.
Árið 2000 setti Hollustuvernd ríkisins fram leiðbeinandi reglur um meðferð dýpkunarefnis og hafa þær síðar verið uppfærðar af Umhverfis- og orkustofnun:
Flæðirit umsóknar og leyfisveitingar vegna varps dýpkunarefnis í hafið

Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





