Vegna starfsdags verður móttaka á Suðurlandsbraut lokuð á fimmtudag. Hægt verður að hafa samband símleiðis. Móttakan verður svo opin samkvæmt venju á föstudag.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Norræn áætlun um sjálfbæra neyslu

Norræna áætlunin um sjálfbæra neyslu samræmir sjálfbærnigildi við raunverulega hegðun neytenda. Áætlunin miðar að því að fræða neytendur, styðja við sjálfbær viðskiptalíkön og tryggja reglufylgni.

Norðurlönd eru almennt viðurkennd sem leiðandi á sviði sjálfbærni, en engu að síður er neysla miðað við höfðatölu í norrænu löndunum á meðal þess sem mest gerist í heiminum. Hætt er við því að þetta misræmi, sem á sér ýmsar orsakir, aukist nema gripið verði til markvissra aðgerða.

Það hve erfitt er fyrir hringrásarlausnir að ná fótfestu eða auka umfang þeirra er veruleg áskorun. Auk þess flæða nýjar vörur inn á markaðinn vegna síaukinnar netverslunar, en margar þessara vara endast stutt og samræmast reglugerðum ESB aðeins að litlu leyti. Þessar ódýru vörur grafa oft undan sjálfbærnimarkmiðum Norðurlandabúa.

Norræna áætlunin um sjálfbæra neyslu brúar þetta bil með því að samræma sjálfbærnigildi svæðisins við raunverulega hegðun neytenda. Áætlunin miðar að því að fræða neytendur, styðja við sjálfbær viðskiptalíkön og tryggja reglufylgni.

Bamboo toothbrushes in a glass jar with eucalyptus leaves
Áherslusvið
Sjálfbær neyslumynstur

Að leiða neytendur í átt að sjálfbærari neyslumynstrum sem byggjast á nægjusemi og endingu og draga úr kaupum á vörum sem ekki uppfylla reglur og innihalda skaðleg efni.

Löggæsla, eftirlit og samstarf

Að efla löggæslu, samstarf og upplýsingamiðlun yfirvalda í viðbrögðum þeirra við innflutningi vara sem ekki samræmast ESB-reglum.

Viðskiptalíkön sem skapa langa endingu og aðrar hringrásarlausnir

Að styðja viðskiptalíkön sem skapa langa endingu (með viðgerðum, uppfærslum, leigu o.s.frv.) og aðrar hringrásarlausnir og auka notkun þeirra meðal neytenda.

Tengiliður

Birgitta Stefánsdóttir

birgittas@uos.is

569 6000

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800