Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Flokkun heimilisúrgangs

Hvað má fara í hvern flokk heimilisúrgangs og hvað má ekki fara?

Að mörgu þarf að huga við flokkun. Oft er vandasamt að finna út úr hvaða flokki úrgangurinn tilheyrir enda erum við með ógrynni ólíkra efna í kringum okkur. Mikilvægt er að hreinsa umbúðir vel áður en þær rata í flokkunartunnur, bæði til að fyrirbyggja ólykt og auðvelda fyrir endurvinnslu. Eins er mikilvægt að fara með rúmfrekan úrgang á söfnunar- eða móttökustöðvar svo hann taki ekki pláss í tunnum og fái viðeigandi meðhöndlun.

Leiðbeiningarnar hér fyrir neðan eru almennar en ekki tæmandi. Mikilvægt er að athuga hjá sínu sveitarfélagi og sorphirðuaðila hvernig flokkun og sorphirðu sé háttað á hverjum stað fyrir sig.

Matarleifar

Í tunnu fyrir matarleifar má fara:
  • Ávextir og ávaxtahýði og -börkur
  • Grænmeti og grænmetishýði
  • Egg og eggjaskurn
  • Kjöt- og fiskafgangar
  • Mjöl
  • Hrísgrjón og pasta
  • Brauð og kökur
  • Kaffifilterar
  • Kaffikorgur
  • Tepokar
  • Tannstönglar úr tré
  • Eldhúsbréf
  • Munnþurrkur
  • Servíettur
  • Korktappar
  • Laufblöð af pottaplöntum
  • Afskorin blóm
Ekki setja í tunnuna*:
  • Tyggjó
  • Lífplast
  • Stóra kjöthluta (lambalæri eða stærra)
  • Kattasand
  • Grófan garðaúrgang
  • Bómull

*Efni sem eru ekki lífræn eiga ekki heima í tunnu fyrir matarleifar. Einnig umbúðir sem eru merktar niðurbrjótanlegar (til dæmis lífplast) þar sem þær brotna ekki nægjanlega hratt niður í iðnaðarjarðgerð og henta því ekki í moltu. Sláturúrgangur og fiskihrat frá fyrirtækjum fer í sérstakan farveg.

Pappír og pappi

Í tunnu fyrir pappír og pappa má fara:
  • Dagblöð
  • Umslög
  • Gluggaumslög
  • Skrifstofupappír
  • Bæklingar
  • Kassakvittanir
  • Hreinar og þurrar mjólkurfernur
  • Gjafapappír
  • Eggjabakkar
  • Post-it miðar
  • Morgunkornspakkar
  • Klósettrúllur
  • Millispjöld af vörubrettum
  • Hreinlegir pizzakassar
  • Pappakassar
Ekki setja:
  • Samsettar umbúðir af pappa og plasti nema taka þær í sundur
  • Óhreinan pappír
  • Munnþurrkur og eldhúsbréf
  • Bökunarpappír

Plast

Í tunnu fyrir plast og plastumbúðir má fara:
  • Plastpokar
  • Plastbrúsar
  • Plastdósir
  • Plastfilma
  • Plastumbúðir
  • Plastbakkar
  • Plastflöskur
  • Plastlok
  • Frauðplastumbúðir
  • Plaströr
Ekki setja:
  • Rúmfrekt plast (farið með það á móttökustöð)
  • Lífplast
  • Raftæki
  • Blöðrur
  • Gúmmí

Málmumbúðir

Í tunnu fyrir málmumbúðir má fara:
  • Niðursuðudósir
  • Aðrar umbúðir úr málmi
  • Málmlok af krukkum
  • Sprittkertabikarar
  • Álpappír, til dæmis af skyr- og jógúrtdósum
  • Hefti
  • Gormar
  • Skrúfur
  • Bréfaklemmur
Ekki setja:
  • Raftæki
  • Rafhlöður
  • Snakkpoka

Gler

Í tunnu fyrir gler má fara:
  • Hreinar umbúðir úr gleri, svo sem krukkur og flöskur sem bera ekki skilagjald
  • Aðrir ónýtir glermunir
Ekki setja:
  • Postulín
  • Leirvörur
  • Lok af glerumbúðum
  • Spegla
  • Flísar

Textíll

Í gáma fyrir textíl má fara:
  • Fatnaður
  • Lín
  • Handklæði
  • Áklæði
  • Tuskur
  • Dúkar
  • Skór
  • Gardínur
  • Aðrar vefnaðarvörur
Ekki setja:
  • Skítugan eða mengaðan textíl
  • Húsgögn

Spilliefni

Dæmi um spilliefni:
  • Rafhlöður
  • Lítil raftæki
  • Prenthylki
  • Úðabrúsar
  • Ljósaperur
  • Málning
  • Leysiefni
  • Rafgeymar
  • Lyfjaleifar
  • Kveikjarar

Skilagjaldsskyldar umbúðir

Endurvinnslan hf. sér um móttöku á skilagjaldsskyldum umbúðum víða um land. Skilagjaldsskyldum umbúðum má einnig koma í söfnunargáma góðgerðar- og íþróttasamtaka, björgunarsveita eða Grænna skáta sem nýta ágóðann í starfsemi sína.

Blandaður úrgangur

Í tunnu fyrir blandaðan úrgang má fara:
  • Einnota bleyjur
  • Tyggjó
  • Blautþurrkur
  • Ryksugupokar
  • Plástrar
  • Eyrnapinnar
  • Svampar
  • Límband
  • Sellófan
  • Annar úrgangur sem er skítugur eða að öðru leyti óendurvinnanlegur

Annar úrgangur

Allan rúmfrekan og annan heimilisúrgang skal koma til endurnýtingar og endurvinnslu á söfnunar- og móttökustöðvar, til dæmis:

  • Húsgögn
  • Raftæki
  • Garðaúrgang
  • Kertavax

Lyfjum og umbúðum utan af þeim (til dæmis pilluspjöldum) má skila til apóteka sem sjá um eyðingu. Ytri umbúðir sem hafa ekki verið í snertingu við lyfin má setja í endurvinnslutunnur.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800