Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Eldgos

Loftmengun frá eldgosum, áhrif hennar á heilsu og ráðleggingar til almennings

Umhverfis- og orkustofnun fylgist með og metur áhrif eldgosa á umhverfi og loftgæði.

Hvernig mengun verður til í eldgosi?

Í eldgosum geta margs konar loftmengunarefni losnað út í andrúmsloftið og valdið mengun í andrúmslofti, úrkomu, drykkjarvatni og gróðri.

  • Gasmengun: eldgosið í Holuhrauni 2014-2015 er dæmi um gos þar sem gasmengun var helsti mengunarþátturinn.
  • Flúor: í eldgosum í Heklu er askan oft mjög flúorrík sem getur skapað vandamál hjá grasbítum.
  • Öskufall: eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 er gott dæmi um gos þar sem öskufall var helsta vandamálið.

Umhverfis- og orkustofnun vaktar styrk þessara efna. Niðurstöður mælinga má sjá á loftgæði.is.

Gasmengun

Frá eldgosum losna ýmsar gastegundir sem geta verið varasamar. Í næsta nágrenni eldstöðva geta gastegundir verið í lífshættulegum styrk en fjær eldgosum getur gas valdið ama, óþægindum og neikvæðum heilsufarsáhrifum.

Algengustu gosgufurnar eru:

  • Brennisteinsdíoxíð (SO₂)
  • Koldíoxíð (CO₂)

Auk þess losna önnur efni eins og brennisteinsvetni (H₂S), vetni (H₂), kolmónoxíð (CO), vetnisklóríð (HCl), vetnisflúoríð (HF) og helíum (He), en í minna magni.

Áhrif gasmengunar á heilsu

Aðaláhrif eldgosa á heilsu manna eru af völdum brennisteinsdíoxíðs (SO₂).

Helstu einkennin eru erting í augum, hálsi og öndunarfærum og við háan styrk getur fólk fundið fyrir öndunarörðugleikum.

Einstaklingar með undirliggjandi astma, berkjubólgu, lungnaþembu og hjartasjúkdóma eru viðkvæmari fyrir SO₂ en heilbrigðir einstaklingar og fá einkenni við lægri styrk en aðrir. Þeim er því ráðlagt að hafa öndunarfæralyf tiltæk.

Þótt ekki séu til áreiðanleg gögn um að börn séu sérstaklega viðkvæm fyrir SO₂ er allur varinn bestur og skynsamlegt að ráðleggingar fyrir fólk með undirliggjandi öndunarfærasjúkdóma gildi líka fyrir börn.

Í hvaða styrk hefur SO₂ áhrif á heilsu?

Litirnir í töflunni miða eingöngu við styrk SO₂ í 10-15 mínútur.

Áhrif loftmengunar á heilsu eru háð þeim tíma sem fólk dvelur í menguninni. Ef dvalið er lengur en 10-15 mínútur í mengun má búast við meiri áhrifum á heilsu en taflan segir til um.

Heilsuverndarmörk fyrir klukkustund eru 350 µg/m³ og heilsuverndarmörk fyrir sólarhring eru 125 µg/m³.

LoftgæðiStyrkur SO₂ í 10-15 mínúturLýsing á loftgæðum og áhrifum á fólkRáðleggingar: öll börn, einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma og viðkvæmir*Ráðleggingar: heilbrigðir einstaklingar
Góð0-350 µg/m³ (0-0,1 ppm)Yfirleitt engin áhrif á heilsufar.Getur fundið fyrir áhrifum. Börn eiga ekki að sofa úti í vagni.Áhrif á heilsufar ólíkleg.
Sæmileg350-600 µg/m³ (0,1-0,2 ppm)Viðkvæmir einstaklingar: Getur valdið óþægindum í öndunarfærum (hósta). Heilbrigðir einstaklingar: Erting í augum, nefi og koki.Farið með gát, fylgist með mælingum. Dragið úr áreynslu utandyra ef þið finnið fyrir einkennum. Lítil börn eiga ekki að sofa úti í vagni. Eldri börn eiga ekki að reyna á sig utandyra. Slökkvið á loftræstingu.Áhrif á heilsufar ólíkleg. Slökkvið á loftræstingu.
Óholl fyrir viðkvæma600-2.600 µg/m³ (0,2-1,0 ppm)Viðkvæmir einstaklingar: Hósti. Erting í augum, koki og nefi. Heilbrigðir einstaklingar: Getur valdið einkennum frá öndunarfærum og ertingu í augum, nefi og koki.Forðist áreynslu utandyra og börn eiga ekki að vera úti við nema til að komast til og frá skóla. Slökkvið á loftræstingu.Áhrif á heilsufar ólíkleg en gagnlegt að draga úr áreynslu utandyra. Reynið að anda eingöngu í gegnum nef. Slökkvið á loftræstingu.
Óholl2.600-9.000 µg/m³ (1,0-3,0 ppm)Viðkvæmir einstaklingar: Hósti og höfuðverkur. Erting í augum, nefi og koki. Heilbrigðir einstaklingar: Sömu einkenni en vægari og ef til vill engin.Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu.Forðist áreynslu utandyra. Þeir sem hafa tök á haldi sig innandyra. Lokið gluggum og slökkvið á loftræstingu.
Vinnuverndarmörk2.600 µg/m³ (1,0 ppm)Vinnuverndarmörk í 15 mínúturÖll vinna utandyra bönnuð nema með viðeigandi gasgrímu og gasmæli.Öll vinna utandyra bönnuð nema með viðeigandi gasgrímu og gasmæli.
Mjög óholl9.000-14.000 µg/m³ (3,0-5,0 ppm)Allir líklegir til að finna fyrir miðlungs- eða alvarlegum einkennum frá öndunarfærum.Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.
Hættuástand>14.000 µg/m³ (>5,0 ppm)Alvarleg einkenni frá öndunarfærum eru mjög líkleg bæði fyrir heilbrigða og viðkvæma.Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.

* Öll börn. Fullorðnir með astma (sögu um ýl og/eða surg fyrir brjósti, eða greindan astma), berkjubólgu, lungnaþembu og hjarta- og æðasjúkdóma. Þessar leiðbeiningar gilda einnig um barnshafandi konur.

Mikilvægt að fylgjast með styrk SO₂

Það er áríðandi að fylgjast með styrk SO₂ í andrúmslofti. Mælingar í rauntíma má sjá á loftgæði.is.

Veðurstofa Íslands gerir einnig daglegar spár um styrk ösku og brennisteinsdíoxíðs í andrúmslofti í eldsumbrotum. Tilgangurinn er að vara almenning við á þeim svæðum þar sem líkur eru á háum styrk og eru niðurstöðurnar birtar á vef Veðurstofunnar.

Vinnuverndarmörk

Fari styrkur SO₂ yfir mengunarmörkin 1.300 µg/m³ að meðaltali yfir 8 klukkustunda tímabil skal stytta vinnutímann í hlutfalli við styrk mengunarinnar eða starfsmenn noti viðeigandi öndunargrímur.

Fari styrkur SO₂ yfir mengunarmörkin 2.600 µg/m³ að meðaltali á 15 mínútna tímabili skal vinnu hætt eða starfsmenn noti viðeigandi öndunargrímur.

Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.

Almennar ráðleggingar um gasmengun

  • Lungna- og hjartasjúklingar hafi lyfin sín tiltæk.
  • Andið sem mest með nefi og forðist líkamlega áreynslu utandyra í mikilli mengun því það dregur úr því SO₂ sem kemst niður í lungu.
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn gegn menguninni.
  • Rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun. Vísindamenn og viðbragðsaðilar sem vinna nálægt gosstöðvum þurfa að hafa tiltækar gasgrímur með kolafilter og gasmæla sem vara við hættulega háum styrk.
  • Fjær eldstöðvum er gasmengun venjulega ekki lífshættuleg en getur valdið óþægindum, sérstaklega hjá þeim sem hafa undirliggjandi sjúkdóma.
a close up of smoke

Öskumengun

Styrkur ösku getur orðið hár í öskufalli meðan á gosi stendur, en einnig í öskufoki, sem getur verið til staðar vikum eða jafnvel mánuðum saman eftir að eldgosi lýkur.

Svifryksmælar geta veitt nákvæmar upplýsingar um styrk ösku í andrúmslofti en einnig er hægt að meta styrkinn gróflega með sjónrænu mati.

Þegar skyggni er orðið fáir kílómetrar vegna ösku og klukkustundarmeðaltal svifryks fer yfir 400 µg/m³ er rétt að hafa eftirfarandi í huga:

  • Ekki er nauðsynlegt fyrir fullfrískt fólk að nota grímu þegar farið er á milli staða, til dæmis út í búð.
  • Forðist langvarandi útiveru.
  • Íþróttaiðkun og útivist sem felur í sér áreynslu, til dæmis skokk og erfiðar gönguferðir, getur valdið óþægindum í öndunarfærum.
  • Stjórnendur íþróttaviðburða ættu að íhuga að fresta mótum við þessar aðstæður, sérstaklega þegar börn eiga í hlut.
  • Þeir sem nauðsynlega þurfa að dvelja lengi úti við ættu að íhuga að nota grímur (sjá um rykgrímur hér að neðan).
  • Ekki er mælt með langvarandi útiveru barna né að ungbörn sofi úti í vagni.

Áhrif öskumengunar á heilsu

Ákveðinn hópur fólks er viðkvæmari fyrir svifryki en aðrir, til dæmis fólk með hjarta- og lungnasjúkdóma. Viðkvæmustu einstaklingar þess hóps geta fundið fyrir auknum einkennum frá sínum sjúkdómum við mun lægri styrk, jafnvel undir 100 µg/m³.

Heildarmagn þeirrar ösku sem einstaklingur andar að sér yfir daginn er háð styrk öskunnar í andrúmslofti og athöfnum viðkomandi. Útivera og aukin líkamleg áreynsla í miklu öskufoki eykur innöndun öskunnar enn frekar.

Í hvaða styrk hefur öskumengun áhrif á heilsu?

Þegar klukkustundarmeðaltal svifryks er farið að mælast í hundruðum míkrógramma á rúmmetra (µg/m³) er ekki hægt að mæla með langvarandi útiveru. Erfitt er að fastsetja ákveðna tölu en þó má segja að við 400 µg/m³ ætti fólk að forðast langvarandi óþarfa útiveru.

Ekki eru alls staðar svifryksmælar en þegar skyggni er orðið fáir kílómetrar vegna öskufoks er mikið svifryk á ferðinni.

Aðgerðir eins og lýst er hér að ofan gagnast vel til að takmarka innöndun öskunnar í miklu öskufoki og lágmarka áhrif á öndunarfærin. Öskufok getur komið upp reglulega eftir eldgos og því er gott að þekkja ráð sem lágmarka áhrif á öndunarfærin.

Rykgrímur

Almennt er mælt með P2-síum til að verjast gosösku. Ekki er talin þörf á notkun P3-gríma.

Mjög einstaklingsbundið er hversu vel fólki gengur að nota rykgrímur og sumum þykja P2-grímurnar óþægilegar. Minnsta mótstaðan er í P1-síum og fyrir fólk sem finnst óþægilegt að anda gegnum P2-síu er P1-sían kostur því hún heldur þó frá um 80% af rykinu.

Rykgrímum er skipt í þrjá flokka eftir þéttleika:

  • P1-grímur stöðva um 80% af ögnum sem eru minni en 0,5 míkrómetrar.
  • P2-grímur stöðva um 94% af ögnum sem eru minni en 0,5 míkrómetrar.
  • P3-grímur stöðva um 99,95% af ögnum sem eru minni en 0,5 míkrómetrar.

Þar sem ekki eru mælistöðvar má styðjast við þetta myndband til að fá gróft mat á styrk ösku og svifryks í andrúmslofti.

Mælingar á loftgæðum
Umhverfis- og orkustofnun heldur utan um mælingar á gæðum þess lofts sem við öndum að okkur og miðlar þeim í gegnum til þess gert vefsvæði. Á vefnum er einnig að finna mæla frá öðrum aðilum. Þeir eru í flestum tilvikum ekki nákvæmnismælar, heldur grófir skynjarar, en geta þó veitt vísbendingar um loftmengun.
Opna loftgæðavef

Núgildandi heilsuverndarmörk svifryks og brennisteinsdíoxíðs á Íslandi

LoftmengunarefniTímamælingHeilsuverndarmörk
Svifryk minna en 10 µm (PM₁₀)Sólarhringsmeðaltal50 µg/m³
Svifryk minna en 10 µm (PM₁₀)Ársmeðaltal40 µg/m³
Svifryk minna en 2,5 µm (PM₂․₅)Ársmeðaltal20 µg/m³
Brennisteinsdíoxíð (SO₂)Klukkustundarmeðaltal350 µg/m³
Brennisteinsdíoxíð (SO₂)Sólarhringsmeðaltal125 µg/m³

Leiðbeiningar og fræðsluefni

Eldgos geta haft margvísleg áhrif á loftgæði. Gasmengun og svifryk koma í mismiklum mæli frá mismunandi gosum.

Umgengni við gosstöðvar

Aðstæður til að virða fyrir sér eldgos eru mismunandi. Hafðu í huga bæði eigið öryggi og náttúruna.

Bregðist við óvæntri mengun

Ekki er hægt að sjá fyrir allar kringumstæður og því er mikilvægt að bregðast við óvæntri mengun. Almenningur er hvattur til að halda sig innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu ef gosmökkur kemur óvænt eða fólk verður vart við óþægindi af hans völdum. Upplýsingar frá Almannavörnum eru á almannavarnir.is.

Eldfjallavefsjá

Íslenska eldfjallavefsjáin er samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskólans og Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Hún veitir nákvæmar og uppfærðar upplýsingar um virk eldfjöll á Íslandi, einkenni þeirra og tengda hættuþætti.

Opna eldfjallavefsjána

Algengar spurningar tengdar mengun frá eldgosum

Hvar er best að finna upplýsingar um loftmengun?

+

Er óhætt að láta ungbörn sofa úti þegar mengun frá eldgosi liggur yfir?

+

Eru börn viðkvæmari fyrir loftmengun en fullorðnir?

+

Hver eru áhrif öskufalls og/eða gasmengunar á skepnur?

+

Hvernig grímur gagnast í eldgosum?

+

Hvenær má búast við mengunartoppum frá eldgosi?

+

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800