Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Hvað er CBAM?

Kolefnisgjald á innflutning tiltekinna vara sem framleiddar eru utan ESB

CBAM (e. Carbon Border Adjustment Mechanism) er kolefnisjöfnunarkerfi ESB við landamæri. Markmiðið er að verðleggja losun gróðurhúsalofttegunda sem verður til við framleiðslu tiltekinna vara utan EES og fluttar inn á markað EES.

Kolefnisgjaldið miðast við magn gróðurhúsalofttegunda sem losna við framleiðslu vörunnar og byggist á verði losunarheimilda í viðskiptakerfi ESB (EU ETS).

Markmið CBAM er að tryggja jafnræði milli framleiðslu innan ESB og innfluttra vara með því að verðleggja innbyggða losun gróðurhúsalofttegunda í vörum sem framleiddar eru utan EES. Jafnframt á kerfið að styðja við loftslagsmarkmið ESB og draga úr kolefnisleka.

CBAM hefur ekki verið lögfest á Íslandi. Áform um frumvarp til laga um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis eru í samráðsgátt. 


Hverjir og hvað falla undir CBAM? 

Hverjir þurfa að uppfylla kröfur CBAM?

Kröfurnar gilda um innflutningsaðila sem flytja inn CBAM-vörur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eða Sviss. 

Hvaða vörur falla undir CBAM?

Eftirfarandi vörur falla undir CBAM þegar farið er yfir 50 tonna viðmiðunarmörk á almanaksári: 

  • Sement 
  • Rafmagn 
  • Áburður 
  • Járn og stál 
  • Ál 
  • Vetni 


Hægt er að sjá nánari útlistun á hvaða vörur falla undir CBAM í I. viðauka í CBAM reglugerð ESB. 

Skyldur innflutningsaðila

Hvað þarf ég að gera ef fyrirtækið mitt flytur inn CBAM-vörur?

Innflutningsaðilar þurfa meðal annars að: 

  1. kanna hvort innflutningurinn falli undir CBAM 
  2. sækja um stöðu viðurkennds CBAM-skýrslugjafa 
  3. afla upplýsinga um losun frá framleiðanda eða birgja 
  4. skila skýrslum í CBAM-skrá 
  5. kaupa og afhenda CBAM-vottorð. 

Hvað er viðurkenndur CBAM-skýrslugjafi?

Viðurkenndur CBAM-skýrslugjafi (e. Authorised CBAM Declarant) er aðili sem hefur fengið heimild til að flytja inn CBAM-vörur og uppfylla skyldur samkvæmt kerfinu, þar á meðal að skila skýrslum og afhenda CBAM-vottorð. 

Hvenær þarf að sækja um stöðu viðurkennds CBAM-skýrslugjafa?

Sækja þarf um stöðu viðurkennds skýrslugjafa áður en innflutningur sem fellur undir endanlega CBAM-kerfið fer fram.

Opnað verður fyrir umsóknir haustið 2026.

Aðilar sem telja sig þurfa að sækja um skráningu sem CBAM-skýrslugjafar geta óskað eftir að vera skráðir á póstlista. Þeir munu fá frekari upplýsingar um umsóknarferlið og innleiðingu CBAM. 

Mælt er með að hefja undirbúning umsóknar tímanlega og afla viðeigandi gagna.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800