Vöktun forgangsefna og vaktlistaefna
Efni eru hluti af tæknilegri framþróun meðal annars í því að ná fram loftslagshlutleysi og með nýsköpun í efnum og vörum. Á sama tíma geta þessi sömu efni verið hættuleg og valdið mönnum, dýrum og umhverfi skaða. Mikilvægur hluti í því að tryggja vellíðan fólks, vernda heilsu okkar, dýra og umhverfisins er að fylgjast með og banna losun þeirra í umhverfið. Sum þeirra geta valdið sjúkdómum svo sem krabbameini, haft áhrif á ónæmiskerfi, hormónakerfi, hjarta- og æðakerfi og aukið næmi fyrir öðrum sjúkdómum. Mengun af völdum efna hefur því verið skilgreind sem ein af helstu ógnum jarðarinnar með því að hafa áhrif á til dæmis hnignun vistkerfa og líffræðilegan fjölbreytileika. Sérstaklega þarf að meta umfang mengandi efna þar sem stór þéttbýli eru og þar sem margskonar álag vegna iðnaðar er til staðar. Á Íslandi erum við heppin að hafa stór landssvæði þar sem efnafræðilegt álag af mannavöldum er ekki til staðar.
Samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála skal vakta forgangsefni (e. priority substances) og vatktlistaefni (e. watchlist) í vatni. Reglugerð nr. 535/2011 um flokkun vatnshlota, eiginleika þeirra, álagsgreiningu og vöktun setur fram frekari kröfur um vöktunina með tilliti til efna á forgangsefnalista. Markmið laga um stjórn vatnamála er að allt yfirborðsvatn sé í að minnsta kosti góðu líffræðilegu ástandi og góðu efnafræðilegu ástandi og grunnvatn skal hafa góða magnstöðu og vera í góðu efnafræðilegu ástandi. Til að skera úr um ástand vatnshlota er nauðsynlegt að vakta ástand þeirra og tryggja að gæði vatns rýrni ekki, sérstaklega þar sem álag er til staðar.
Forgangsefni
Forgangsefni eru þau efni og efnasambönd sem hafa verið skilgreind sem hættuleg og þrávirk og valda alvarlegri mengun eða eitrun í vatni og umhverfi. Þrávirk efni geta safnast upp í lífverum og haft eitrandi áhrif á þær, fæðukeðjur þeirra og umhverfi.
Til þess að draga úr losun og notkun á þessum efnum hefur Evrópusambandið gefið út lista af 45 forgangsefnum (tilskipun nr. 2008/105/ESB) sem vakta skal í vatni.
Forgangsefnin sem vakta á eru sett fram í reglugerð nr. 535/2011 og umhverfismörk þeirra má finna í A hluta III viðauka reglugerðar nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns. Með vöktun og markvissum aðgerðum er ætlunin að draga úr mengun af völdum efna á forgangsefnalistanum.
Forgangsefni voru mæld í fyrsta skipti árin 2019-2020 í 14 vatnshlotum. Tilgangur vöktunar var að skoða hvort þessi efni finnist í vatnshlotum á Íslandi. Samkvæmt niðurstöðunum voru forgangsefnin undir greiningarmörkum í langflestum tilfellum, en þó fundust forgangsefni yfir greiningarmörkum í einstaka tilfelli en ekki yfir umhverfisgæðakröfum nema í tveimur tilfellum.
Í vatnshlotinu Tjörnin í Reykjavík (104-2386-L) og Kópavogslæk (104-581-R) fundust forgangsefni yfir umhverfisgæðakröfum fyrir leyfilegt ársmeðaltal efnanna (sjá töflu 5 og viðauka II). Þau vatnshlot ná því ekki umhverfisarkmiði um gott efnafræðilegt ástand. Sú niðurstaða er í samræmi við það umfangsmikla álag sem er á vatnasviði vatnshlotanna. Það vekur athygli þegar niðurstöður forgangsefnamælinganna eru rýndar að ekki finnast fleiri forgangsefni yfir greiningarmörkum eða umhverfisgæðakröfum í yfirborðsvatni á Íslandi en raun ber vitni. Það útskýrist líklega vegna landfræðilegrar einangrunar Íslands, fólksfæð og þeirra búsetumynstra sem einkenna land og þjóð. Yfirgnæfandi meirihluti vatnshlota á Íslandi eru án álags og því mjög miklar líkur að því að þau séu í góðu efnafræðilegu ástandi.
Vatnssýni voru tekin á eftirfarandi stöðum: Mývatni, Þingvallavatni, Eiðisvatni, Tjörninni í Reykjavík, Varmá í Ölfusi, Þjórsá, Ölfusá, Í sunnanverðum Faxaflóa vestan við Kjalarnes, Eyjafirði innanverðum, Pollinum í Skutulsfirði, innanverðu Viðeyjarsundi í Reykjavík,í Kópavogslæk, við Klettagarða og í Seyðisfirði.
Vaktlistaefni
Efni á svokölluðum vaktlista eru efni sem talin eru geta verið skaðleg umhverfinu en upplýsingar um þau eru ekki nægilegar til þess að meta hættuna. Efnin eru því sett á þennan vaktlista og aðildarríki vakta þau og skila árlega niðurstöðum. Sem dæmi um efni á vaktlista má nefna lyfjaleifar og varnarefni.
Vaktlistaefni eru vöktuð í að minnsta kosti 2 ár eða þar til hægt er að meta hættu og umhverfisáhrif efnanna. Vaktlistinn styrkir grundvöll fyrir ákvarðanatöku framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins við val á nýjum efnum á forgangsefnalista, ásamt því að styðja við mat á ástandi vatnshlota. Listinn er uppfærður á tveggja ára fresti en hvert efni er aðeins fjögur ár á listanum. Að þeim tíma loknum er ákvörðun tekin um það hvort efni skuli skilgreint sem forgangsefni, og því bætt á forgangsefnalista, eða ákvörðun tekin að ekki sé talin mikil hætta af notkun efnisins og vöktun þess lokið.
Við val á nýjum efnum á vaktlistann tekur framkvæmdarstjórnin mið af rannsóknum, tillögum hagsmunaaðila, eiginleikum vatnaumdæma og niðurstöðum vöktunar, notkunarmynstri, eiginleikum, framleiðslumagni og dreifingu efnanna. Fjórir vaktlistar hafa verið gefnir út.
Umhverfis- og orkustofnun hefur staðið fyrir skimun á vaktlistaefnum á sumrin/haustin á völdum sýnatökustöðum síðan 2018. Bæði á stöðum þar sem mannleg umsvif eru til staðar í ríku mæli en einnig á stöðum þar sem grunur leikur á því að efnin finnist en uppruni er óljós. Sýnatökur hafa farið fram meðal annars í Varmá, Tjörninni í Reykjavík, Klettagörðum, Mývatni, Kópavogslæk, Nauthólsvík, Eyvindará á Egilsstöðum, Ölfusá og Arnarneslæk. Efnin sem skimað er eftir eru margskonar til dæmis skordýraeitur, hormón, hjarta- og blóðþrýstingslyf, sýklalyf, geðlyf og bólgueyðandi lyf.
Mikilvægt er að hafa í huga að þó svo að sum þeirra efna sem finnast í umhverfinu eru okkur lífsnauðsynleg þá eru önnur sem við getum lagt okkur fram við að minnka notkun á eða komið þeim í viðeigandi förgun. Í mörgum tilfellum er hægt að minnka eða sleppa notkun skordýraeiturs og velja umhverfisvænni lausnir í staðin. Jafnframt er hægt að draga úr bílaþvotti og þá sér í lagi við heimahús þar sem viðeigandi mengunarvarnarbúnaður er ekki til staðar og frárennslið fer beint ofan í næsta niðurfall. Algengt er að niðurföll leiði frárennsli beint út í næsta læk til dæmis víða á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt er mjög mikilvægt að koma öllum lyfjaafgöngum til förgunar í apótekum og sturta aldrei niður lyfjum eða mengandi efnum í salerni. Ávallt skal koma slíkum efnum í viðeigandi förgun.
Hægt er að nálgast samantekt um vöktun efna í vatni 2018 – 2022 í skýrslu Umhverfisstofnunar hér.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





