Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Gjaldskrá Umhverfis- og orkustofnunar staðfest

Gjaldskrár Umhverfis- og orkustofnunar nr. 1033/2025 og fyrir norræna umhverfismerkið Svaninn nr. 1032/2025 hafa verið auglýstar í Stjórnartíðindum og taka þegar gildi. Gjaldskrárnar eru staðfestar af Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og byggja á gjaldheimildum sem koma fram í þeim lögum sem stofnunin starfar eftir. Gjaldskrá fyrir norræna umhverfismerkið Svaninn tekur jafnframt mið af gjaldskrám Norðurlandanna.

Markmið gjaldskráa Umhverfis- og orkustofnunar er að tryggja gagnsæi og jafnræði í gjaldtöku og endurspegla raunkostnað við veitta þjónustu. Gjöldin taka mið af vinnuframlagi við afgreiðslu mála og veitingu leyfa og annarrar þjónustu. Með því móti skapast hvati til aukinnar skilvirkni og bættrar þjónustu.

Gjaldskrárnar eru aðgengilegar á vef stofnunarinnar ásamt leiðbeinandi viðmiðum um fjölda vinnustunda fyrir tiltekin þjónustuverkefni.

Fleiri fréttir

Skoða
17. febrúar 2026
Slitið malbik veldur mikilli svifryksmengun
Mikil svifryksmengun mældist á höfuðborgarsvæðinu þann 16. febrúar 2026. Styrkur grófs svifryks fór víða yfir heilsuverndarmörk. Mestur styrkur mældist við Grensásveg. Hæsta klukkustundarmeðaltal á grófu svifryki (PM10) var 475 µg/m³ og sólarhringsmeðaltalið var 153 µg/m³. Við Dalsmára í Kópavogi mældist sólarhringsmeðaltalið 99 µg/m³. 11 sinnum yfir heilsuverndarmörk á Grensásvegi Heilsuverndarmörk fyrir gróft svifryk eru 50 µg/m³ að meðaltal fyrir heilan sólarhring. Ekki má fara oftar en 35 sinnum á ári yfir þau mörk. Það sem af er ári hefur svifryksmengun farið 11 sinnum yfir mörkin á Grensásvegi. Algengt á þessum árstíma Í meðalári mælast hæstu svifryksgildi oftast í febrúar og mars. Á þessum árstíma er stærstur hluti svifryksins malbiksryk sem verður til við slit á vegyfirborði. Það er að stærstum hluta af völdum nagladekkja. Þurrt veður og úrkomuleysi auka líkur á háum styrk. Rykbinding og götusópun Síðustu vikur hafa verið óvenju snjóléttar og götur hafa verið rykbundnar talsvert oftar en venjulega. Birgðir af rykbindiefni kláruðust því fyrr en áætlað var. Von er á nýrri sendingu til landsins í lok vikunnar. Það er erfitt að sópa götur í frosti. Um mánaðarmótin janúar-febrúar kom veðurgluggi með hlýindum sem var nýttur til að sópa götur. Vegagerðin sópaði þá helstu þjóðvegi í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu. Reykjavíkurborg sópaði á sama tíma allar þær götur sem má sjá á meðfylgjandi korti. Í mikill umferð þegar um 40% bíla eru á nagladekkjum er slitið malbik hins vegar fljótt að safnast upp aftur í vegköntum. Mynd: Götur sem eru rauðmerkar lét Reykjavíkurborg sópa um mánaðarmótin janúar-febrúar. Götur sem Vegagerðin sópaði eru ekki merktar inn. Það eru: Miklabraut/Hringbraut, Kringlumýrarbraut, Hafnarfjarðarvegur, Sæbraut og Reykjanesbraut að Hvaleyrarholti. Ráðleggingar til almennings Mengun er mest við stórar umferðaræðar en lækkar hratt með fjarlægð frá götu. Þar munar um hverja tíu metra sem farið er frá götu og í um 200 metra fjarlægð er mengun talsvert mikið minni en við götubrún. Fólki sem er viðkvæmt fyrir loftmengun er bent á að: Fylgjast með loftgæðaupplýsingum á loftgaedi.is. Takmarka útiveru nálægt umferðarþungum götum þegar mengun er mikil. Velja frekar gönguleiðir og útivistarsvæði fjarri helstu umferðaræðum.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800