600 milljónir í nýsköpun í jarðvarmanýtingu

Loftslags- og orkusjóður hefur úthlutað 600 milljónum króna til 11 verkefna sem miða að nýsköpun og tækniþróun í jarðvarmanýtingu. Verkefnin fela meðal annars í sér þróun nýrrar tækni til djúpborunar, bætta nýtingu jarðvarma og lausnir sem styðja við sjálfbæra orkunýtingu.
Stærsti styrkurinn, tæplega 310 milljónir króna, rennur til lykilverkefnis í þróun djúpborunartækni á heimsvísu. Markmiðið með verkefninu er að hagnýta jarðhita í þeirri dýpt jarðhitakerfa þar sem hitastig getur farið yfir 400–500°C og þar með aukið orkuvinnslu verulega í hverri holu.
Flest þeirra verkefna sem hljóta styrk snúa að þróun bættrar tækni til djúpborunar. Þá er borað dýpra ofan í jarðhitakerfi á háhitasvæðum en áður hefur verið gert og varmaorka í dýpri lögum virkjuð. Þannig er jarðhitakerfið stækkað niður á við. Ísland er í fremstu röð á þessu sviði og hefur forsendur til að viðhalda þeirri stöðu á næstu árum.
Verkefni í eftirfarandi flokkum hlutu einnig styrk:
- Þróun tækni til viðhalds á hefðbundnum búnaði
- Smáskjálftarannsóknir
- Bætt nýting varma
- Nýting varmadæla við jarðhitakerfi
Úthlutuninni er ætlað að styrkja samkeppnishæfni Íslands á sviði jarðhita og auka verðmætasköpun.
Alls bárust 23 umsóknir. Heildarupphæð styrkumsókna nam 1.309 milljónum króna.
Styrkþegar










