Til baka
25 febrúar 2025
Auglýst eftir umsóknum um styrki til strandhreinsana

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki til strandhreinsana á árinu 2025.
Umsóknarfrestur er til 27. mars 2025
Félagasamtök, áhugamannafélög, íþróttafélög og aðrir lögaðilar geta sótt um styrki fyrir verkefni sem felst í hreinsun strandlengju Íslands á árinu 2025.
Nýverið kynnti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra breytingar á reglum um styrkveitingar til verkefna sem miða að hreinsun strandlengju Íslands. Áherslan hefur verið aukin á að styrkirnir séu nýttir í skipulegar hreinsanir, sérstaklega nú á lokaspretti átaksins. Við mat á umsóknum er nú lögð meiri áhersla á umfang hreinsana, í samræmi við meginmarkmið styrkveitinganna um að hreinsa strandlengjuna á markvissan hátt.