Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Aukin afköst og samlegð með nýrri Umhverfis- og orkustofnun – Greining World Energy Council

Ný alþjóðleg greining staðfestir sterka stöðu Íslands í orkumálum en bendir jafnframt á að næsti áfangi orkuskipta ráðist af framkvæmdagetu, skilvirku regluverki og samhæfingu.

Þetta kemur fram í World Energy Issues Monitor 2026, árlegri greiningu World Energy Council á stöðu og helstu áskorunum í orkumálum á heimsvísu.

Ísland meðal fremstu ríkja

Í greiningunni á stöðu Íslands kemur fram að landið er áfram meðal fremstu ríkja heims á sviði orkumála, með nær alfarið endurnýjanlega raforkuframleiðslu og hitaveitu. Þar kemur einnig skýrt fram að helstu áskoranir framtíðarinnar snúa síður að auðlindum eða tækni heldur mun frekar að getu til framkvæmda, skilvirku regluverki og stjórnsýslu, og samhæfingu.

Bent er á að Ísland standi á ákveðnum tímamótum. Landið hefur náð árangri í fyrstu kynslóð orkuskipta, en framhaldið mun ráðast af því hvort takist að hrinda í framkvæmd sífellt flóknari innviðaverkefnum, tryggja samræmda stefnu og skapa skilvirkt regluverk.

Sameining stofnana skilar árangri

Sameining Orkustofnunar og Umhverfisstofnunar árið 2025 er metin sem mikilvæg kerfisbreyting í þessa átt. Með henni er dregið úr tvíverknaði, aukið á samhæfingu milli orku- og umhverfismála og skilvirkni í leyfisveitingum bætt.

Fyrstu niðurstöður benda til þess að þessi nálgun hafi þegar skilað verulegum árangri. Á fyrsta starfsári nýrrar stofnunar jókst afkastageta í leyfisveitingum um allt að 75%, án þess að gæðum væri fórnað.

Uppbygging innviða stærsta áskorunin

Greiningin undirstrikar að stærsta áskorun Íslands felst nú í uppbyggingu og afhendingu innviða. Orkukerfið er að þróast frá tiltölulega einföldu kerfi yfir í flókið, samþætt kerfi þar sem rafvæðing samgangna, umbreyting iðnaðar og aukin orkunotkun setja auknar kröfur á skipulag og framkvæmd. Ef samhæfing er ekki nægileg getur tafir í einum hluta kerfisins haft keðjuverkandi áhrif, aukið kostnað og dregið úr trausti fjárfesta. Því er ljóst að framkvæmdageta og samræming milli kerfa verða lykilforsendur áframhaldandi árangurs.

Fyrirsjáanlegt regluverk mikilvægt

Óvissa í leyfisveitingum er skilgreind sem einn stærsti áhrifaþátturinn á fjárfestingar. Hún getur lengt framkvæmdatíma, aukið kostnað og áhættu. Til að bregðast við þessu hafa stjórnvöld lagt áherslu á einfaldari og hraðari ferla, skýrari tímamörk og markvissa forgangsröðun verkefna. Markmiðið er að styrkja samkeppnishæfni Íslands og auka aðdráttarafl fyrir fjárfestingar í grænni orku og innviðum.

Orkuskipti í alþjóðlegu samhengi

Þrátt fyrir sterka stöðu í endurnýjanlegri orku er Ísland hluti af alþjóðlegu kerfi. Áhætta tengist því ekki síst:

  • Aðfangakeðjum
  • Fjármagnsflæði
  • Stafrænum innviðum
  • Alþjóðlegri óvissu

Á sama tíma stefnir Ísland að kolefnishlutleysi fyrir 2040. Það kallar á frekari rafvæðingu, nýsköpun og samspil loftslagsmála og náttúruverndar. Þessi tvíþætta áskorun, að hraða orkuskiptum og verja náttúru, verður lykilverkefni næstu ára.

Image

Mynd úr skýrslunni: Vöktun orkumála í heiminum - staðan 2026.

Um skýrsluna

Skýrslan byggir á mati rúmlega 2.750 leiðtoga í orkumálum frá meira en 110 löndum.

World Energy Council var stofnað árið 1923 er eitt elsta sjálfstæða og óháða alþjóðasamfélag leiðtoga og sérfræðinga á sviði orkumála. Ísland er aðili að ráðinu og Umhverfis- og orkustofnun er tengiliður þess hér á landi.

Verkefnið á Íslandi var unnið undir forystu Umhverfis- og orkustofnunar í samstarfi við Landsvirkjun og Samorku.

Fleiri fréttir

Skoða
2. október 2026
Óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot – frestur framlengdur til 31. október
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands. Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði. Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar Umhverfis- og orkustofnun vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028–2033. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlotsins náist. Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdir eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi. Upplýsingar birtar með vatnaáætlun Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033. Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þarf ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar. Skilafrestur Skilafrestur er til og með 31. október 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar. Lagagrunnur Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns. Nánari upplýsingar Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is.
24. september 2026
Auglýst eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar
Umhverfis- og orkustofnun kallar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026. Tilgangur Bláskeljarinnar er að gefa lausnum sem stuðla að hringrásarhagkerfi verðskuldaða athygli. Sérstök áhersla er lögð á að verðlauna lausnir sem sýna hvernig hringrásarhagkerfið getur skapað raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar og betra samfélags um leið og dregið er úr auðlindanotkun, úrgangi og umhverfisáhrifum. Verðlaunin verða afhent af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.  Bláskelin fær nýtt hlutverk  Í ár verður Bláskelin í fyrsta sinn veitt fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Áður var hún veitt fyrir lausnir sem drógu úr plastnotkun, en nú er leitað að bæði nýjum og rótgrónum lausnum sem halda verðmætum í hringrás – þvert á efnisflokka og geira.  Hverju leitum við að?  Við mat á tilnefningum verður meðal annars horft til:  Tengsla við hringrásarhagkerfið – hvernig lausnin stuðlar að betri nýtingu auðlinda með auknum líftíma, minni sóun og aukinni hringrás.  Nýsköpunargildis – hversu nýstárleg og framsækin lausnin er í íslensku samhengi.  Raunhæfni – hvort lausnin svari raunverulegri þörf, sé framkvæmanleg og hafi möguleika á að ná útbreiðslu.  Áhrifa – hvaða jákvæðu áhrif lausnin hefur á umhverfi, samfélag og auðlindanýtingu. Góðar lausnir þurfa ekki alltaf að vera nýjar. Stundum felst hugvitið í því að heimfæra lausnir sem hafa reynst vel erlendis, horfa til baka,  enduruppgötva það sem virkaði og laga það að þörfum framtíðarinnar. Við leitum því bæði að nýjum og framsæknum lausnum og rótgrónum verkefnum sem hafa þegar sýnt árangur.  Hver á skilið Bláskelina 2026?  Tilnefna má fyrirtæki, stofnun, einstakling eða samtök fyrir verkefni eða lausn á sviði hringrásarhagkerfisins. Aðilar geta bæði tilnefnt eigin verkefni og annarra.   Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum.  Tekið er við tilnefningum út 20. október 2026.   

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800