Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Fýlar endurspegla ástand hafsins: Plast í meirihluta fugla

Vöktun á magni plasts í meltingarvegi fýla árið 2025 er lokið. Niðurstöður sýna að plast fannst í 68% fuglanna og í 18% tilvika var magnið yfir viðmiðunarmörkum OSPAR (0,1 g). Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um vöktunina sem Náttúrustofa Norðausturlands annast fyrir Umhverfis- og orkustofnun.

Helstu niðurstöður

  • Plast fannst í 68% fýla – meðaltal fyrri vaktana er um 73%.
  • 6,7 plastagnir voru að meðaltali í hverjum fýl – meðaltal fyrri vaktana er um 5,4 agnir.
  • Mest fundust 59 plastagnir í einum fugli.
  • 18% fýla höfðu meira en 0,1 g af plasti í meltingarvegi – langtímamarkmið OSPAR er að það séu ekki fleiri en 10% fýla með svo mikið plast.
Image

Plast sem fannst í meltingarvegi eins fýls. Mynd: Náttúrustofa Norðausturlands.

Vöktunin hluti af OSPAR-samningnum

Rannsóknir á plasti í meltingarvegi fýla er viðurkennd aðferð til vöktunar á plasti í hafinu. Fýlar eru algengir fuglar á norðurslóðum sem afla sér eingöngu fæðu á hafi úti, eru fyrst og fremst yfirborðsætur og þekktir fyrir að gleypa alls kyns úrgang.

Ísland gerðist aðili að OSPAR-samningnum um verndun Norðaustur-Atlantshafsins árið 1997. Í samningnum eru ákvæði um reglubundna vöktun á ástandi hafsvæðisins. Magn plasts í meltingarvegi fýla er einn þeirra þátta sem vaktaðir eru. Hér á landi hófst sú vöktun árið 2018.

Image

Mest fundust 59 plastagnir í einum fugli. / Mynd: Canva.

Fleiri fréttir

Skoða
2. október 2026
Óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot – frestur framlengdur til 31. október
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands. Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði. Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar Umhverfis- og orkustofnun vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028–2033. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlotsins náist. Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdir eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi. Upplýsingar birtar með vatnaáætlun Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033. Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þarf ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar. Skilafrestur Skilafrestur er til og með 31. október 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar. Lagagrunnur Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns. Nánari upplýsingar Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is.
24. september 2026
Auglýst eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar
Umhverfis- og orkustofnun kallar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026. Tilgangur Bláskeljarinnar er að gefa lausnum sem stuðla að hringrásarhagkerfi verðskuldaða athygli. Sérstök áhersla er lögð á að verðlauna lausnir sem sýna hvernig hringrásarhagkerfið getur skapað raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar og betra samfélags um leið og dregið er úr auðlindanotkun, úrgangi og umhverfisáhrifum. Verðlaunin verða afhent af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.  Bláskelin fær nýtt hlutverk  Í ár verður Bláskelin í fyrsta sinn veitt fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Áður var hún veitt fyrir lausnir sem drógu úr plastnotkun, en nú er leitað að bæði nýjum og rótgrónum lausnum sem halda verðmætum í hringrás – þvert á efnisflokka og geira.  Hverju leitum við að?  Við mat á tilnefningum verður meðal annars horft til:  Tengsla við hringrásarhagkerfið – hvernig lausnin stuðlar að betri nýtingu auðlinda með auknum líftíma, minni sóun og aukinni hringrás.  Nýsköpunargildis – hversu nýstárleg og framsækin lausnin er í íslensku samhengi.  Raunhæfni – hvort lausnin svari raunverulegri þörf, sé framkvæmanleg og hafi möguleika á að ná útbreiðslu.  Áhrifa – hvaða jákvæðu áhrif lausnin hefur á umhverfi, samfélag og auðlindanýtingu. Góðar lausnir þurfa ekki alltaf að vera nýjar. Stundum felst hugvitið í því að heimfæra lausnir sem hafa reynst vel erlendis, horfa til baka,  enduruppgötva það sem virkaði og laga það að þörfum framtíðarinnar. Við leitum því bæði að nýjum og framsæknum lausnum og rótgrónum verkefnum sem hafa þegar sýnt árangur.  Hver á skilið Bláskelina 2026?  Tilnefna má fyrirtæki, stofnun, einstakling eða samtök fyrir verkefni eða lausn á sviði hringrásarhagkerfisins. Aðilar geta bæði tilnefnt eigin verkefni og annarra.   Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum.  Tekið er við tilnefningum út 20. október 2026.   

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800