Garðheimar innkalla Húsa- og garðaúða

Umhverfis- og orkustofnun vekur athygli á því að Garðheimar gróðurvörur ehf. hafa innkallað Húsa- og garðaúða í 400 ml málmúðabrúsum. Framleiðslunúmerið er: P31396.
Ástæða innköllunarinnar er að botninn á umbúðum vörunnar er ekki þéttur og getur vökvinn lekið út. Varan er hættuleg umhverfinu og skaðleg lífi í vatni. Lekar umbúðir auka áhættuna á að varan berist til dæmis í niðurföll og þaðan út í umhverfið.
Garðheimar gróðurvörur ehf. beina því til neytenda sem keypt hafa vöruna að skila henni á næsta sölustað eða til Garðheima, Álfabakka 6, 109 Reykjavík og fá endurgreitt.









