Unnið er að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar og eru þeir tímabundið óaðgengilegir. Við biðjumst velvirðingar á því.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Samstarf um framkvæmd umhverfislöggjafar – Stjórn IMPEL í heimsókn

Fulltrúar Umhverfis- og orkustofnar, umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins og stjórn IMPEL.

Stjórn IMPEL (European Union Network for the Implementation and Enforcement of Environmental Law) heimsótti Ísland dagana 5. og 6. maí 2026 og átti fundi með stjórnvöldum og stofnunum sem annast stjórnsýslu og framkvæmd umhverfismála á Íslandi. Umhverfis- og orkustofnun fer með hlutverk landsfulltrúa Íslands innan IMPEL og skipulagði heimsóknina í samstarfi við þátttakendur innan netsins.

IMPEL er rótgróið samstarfsnet umhverfisyfirvalda í Evrópu og hefur starfað frá árinu 1992. Markmið IMPEL er að efla framkvæmd og eftirfylgni umhverfislöggjafar með því að miðla reynslu, þróa verkfæri og auka samstarf milli eftirlits- og leyfisveitandi stjórnvalda í Evrópu.

Á fundunum var farið yfir skipulag og framkvæmd umhverfiseftirlits á Íslandi, áskoranir tengdar innleiðingu EES-regluverks og kynningar á verkefnum og sérfræðihópum IMPEL. Einnig var rætt um möguleika á aukinni þátttöku íslenskra aðila í verkefnum IMPEL og hvernig starfið getur stutt við þróun framkvæmdar og eftirlits á Íslandi.

Sérstök áhersla var lögð á umræður um:

  • Úrgangsmál
  • Mengunarvarnir og iðnaðareftirlit
  • Haf- og vatnamál
  • Náttúrvernd
  • Umhverfisglæpi
  • Áhættumiðað eftirlit
  • Nýjar stafrænar lausnir

Á fundunum var góð þátttaka lykilstofnana í framkvæmd umhverfislöggjafar, sem skapaði lifandi umræður og skýran vilja til að efla samstarf og auka skilvirkni í stjórnsýslunni.

Ísland hefur verið virkur þátttakandi í IMPEL frá 2010, þar sem að Umhverfisstofnun var upphaflega meðlimur og svo Umhverfis- og orkustofnun.  IMPEL er mikilvægt samstarfsnet sem hefur styrkt íslensk stjórnvöld með því að efla samræmda, skilvirka og faglega framkvæmd umhverfislöggjafar í gegnum þekkingarmiðlun og samstarf á evrópskum vettvangi.

Fleiri fréttir

Skoða
9. júlí 2026
Töluverður loftslagsábati með stuðningi Loftslags- og orkusjóðs 2025
Olíusparnaður vegna verkefna sem hlutu styrk úr Loftslags- og orkusjóði árið 2025 nam um 23 milljónum lítra á ársgrundvelli að því er fram kemur í ársskýrslu sjóðsins sem nú er komin út. Þá nam nettó raforkusparnaður vegna styrktra verkefna 59 GWst á ári, sem  samsvarar árlegri raforkunotkun um 15.000 heimila eða um 20.000 rafbíla. Mikill árangur náðist í orkuskiptum og orkunýtni á þessu fyrsta heila starfsári Loftslags- og orkusjóðs og má, að því er segir í skýrslunni, áætla að sjóðurinn hafi stuðlað að olíu- og raforkusparnaði til 15 ára, sem má verðmeta til 93 milljarða króna á núvirði. Markaðsvirði olíu- og raforkusparnaðar vegna styrktra verkefna er metið rúmlega áttfalt á við kostnað sjóðsins. Þar af er eru samkeppnisverkefnin metin langsamlegast arðbærust, en ábati vegna þeirra er metinn um 24-faldur á við kostnað sjóðsins. Alls auglýsti sjóðurinn styrki til sjö átaksverkefna í samkeppnishluta sjóðsins fyrir um 3,6 milljarða og var eftirspurn eftir styrkjum rúmlega fjórföld á við auglýsta upphæð. Ábati vegna beinna styrkja til ökutækja var tæplega fjórfaldur á við kostnað sjóðsins og þar af er ábati vegna styrkja til hóp- og vörubifreiða metinn um 80% meiri en vegna styrkja til fólks- og sendibíla. Alls námu skráðar skuldbindingar Loftslags- og orkusjóðs vegna beinna styrkja til ökutækja 8,6 ma.kr., en sjóðurinn styrkti á árinu 7.199 ökutæki, þar af 6.724 fólks- og sendibíla, 453 hóp- og vörubifreiðar og 22 nytjahjól. Þá nam samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna styrktra verkefna um 2% af samfélagslosun Íslands árið 2024.
25. júní 2026
Nýtt mælaborð veitir betri yfirsýn yfir rekstur raforkukerfisins
Raforkueftirlitið hefur birt mælaborð sem sýnir þróun lykilstærða hjá sérleyfisfyrirtækjum í flutningi og dreifingu raforku. Markmiðið er að auka aðgengi að upplýsingum um rekstur raforkukerfisins og styrkja gagnsæi í eftirliti. Í mælaborðinu er hægt að skoða þróun meðal annars á eignum, fjárfestingum, rekstrarkostnaði og afhendingu raforku. Notendur geta síað gögn eftir fyrirtækjum, tímabilum og verðlagi til að fá betri yfirsýn yfir rekstur einstakra fyrirtækja og raforkukerfisins í heild. Mælaborðið verður jafnframt grunnur að fyrirhugaðri reglubundinni skýrslugjöf Raforkueftirlitsins um fjárhags- og tækniupplýsingar sérleyfisfyrirtækja. Fjárfestingar í raforkukerfinu hafa aukist Mælaborðið sýnir að fjárfestingar í íslenska raforkukerfinu hafa verið talsverðar undanfarin 14 ár. Árið 2024 nam eignastofn sérleyfisfyrirtækjanna um 291 milljörðum króna, þar af voru eignir Landsnets metnar á um 149 milljarða króna. Til samanburðar nam eignastofn sérleyfisfyrirtækja um 139 milljörðum króna árið 2011, þar af um 82 milljörða króna hjá Landsneti. Niðurstöður benda til þess að verðmæti eignastofnsins hafi því meira en tvöfaldast á tímabilinu. Rekstrarkostnaður hefur hækkað hraðar en afhending raforku Samanlagður rekstrarkostnaður raforkukerfisins nam um 156 milljörðum króna á tímabilinu 2011 og 2024. Árlegur meðalvöxtur rekstrarkostnaðar var um 5,9%. Á sama tímabili nam heildarafhending raforku um 300 TWst. Árlegur meðalvöxtur kerfisins var um 1,1%. Gagnsæi í eftirliti Með birtingu mælaborðsins fá bæði fyrirtæki, stjórnvöld og notendur raforkukerfisins betra aðgengi að upplýsingum um rekstur og þróun raforkukerfisins á Íslandi. Það styrkir gagnsæi í eftirliti og skapar betri forsendur fyrir upplýsta ákvarðanatöku. Opna mælaborðið

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800