Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Lyfjaleifar greinast í vatni sem tengist fráveitu

Lyfjaleifar greindust í Ölfusá og Varmá í nóvember 2025.

Lyfjaleifar greinast aðallega í yfirborðsvatni sem tengist fráveitukerfum sveitarfélaga. Þar sem losun fráveitu er mikil mælast fleiri lyf og í hærri styrk. Þetta sýna niðurstöður vöktunar Umhverfis- og orkustofnun á skaðlegum efnum í vatni árið 2025.

Á stöðum án beinnar tengingar við fráveitu greindust hins vegar fá eða engin lyf yfir greiningarmörkum, jafnvel í þéttbýli.

Sýnatökur á fjórum stöðum

Skimað var fyrir um 160 mismunandi hormónum og lyfjaleifum á fjórum stöðum:

  • Kópavogslæk
  • Reykjavíkurtjörn
  • Varmá í Hveragerði (við Öxnalæk)
  • Ölfusá við Selfossi (við Geitanes)

Lyfjaleifar greindust í Varmá og Ölfusá, þar sem bein tenging er við fráveitu. Í Kópavogslæk og Reykjavíkurtjörn greindust hins vegar fá eða engin efni.

Niðurstöðurnar sýna að samsetning lyfjaleifa í yfirborðsvatni endurspeglar íbúafjölda, umfang fráveitukerfa og almenna lyfjanotkun í samfélaginu.

Mikilvægt er að taka fram að um er að ræða eina skimun á tilteknum tíma. Niðurstöðurnar sýna því stöðuna á þeim tímapunkti en ekki langtímaþróun. Ekki er hægt að staðfesta að lyfjaleifar séu alltaf til staðar eða aldrei.

Sýnatökurnar fóru fram í nóvember 2025.

Hvaða efni eru mæld?

Frá árinu 2018 hefur stofnunin skimað fyrir efnum á vaktlista Evrópusambandsins. Þar eru efni sem geta haft áhrif á vatnalíf, til dæmis:

  • Verkjalyf, geðlyf og hjarta- og æðalyf
  • Sýklalyf
  • Kynhormón
  • Plöntuvarnarefni
  • Efni úr sólarvörnum

Hvernig berast lyfjaleifar í vatn?

Lyf berast í umhverfið þegar þau skiljast út úr líkamanum með þvagi og hægðum. Einnig geta lyf farið í fráveitu ef þeim er sturtað í salerni.

Skólphreinsistöðvar á Íslandi eru almennt ekki hannaðar til að fjarlægja lyfjaleifar.

Hormónar og sýklalyf sérstakt áhyggjuefni

Lyfjaleifar sem innihalda hormóna valda sérstökum áhyggjum vegna þess að þau geta haft skaðleg áhrif á lífríki, jafnvel í mjög litlum styrk. Sama á við um sýklalyf. Sýklalyfjaónæmi er í hraðri þróun á heimsvísu. Sjá nánar í aðgerðaáætlun heilbrigðisráðuneytisins gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

Skynsamleg lyfjanotkun og rétt förgun

Skynsamleg lyfjanotkun skiptir máli fyrir heilsu, samfélag og umhverfi. Mikilvægt er að:

  • Heilbrigðisstarfsfólk sé meðvitað um áhrif lyfja á umhverfi
  • Einstaklingar noti lyf samkvæmt leiðbeiningum
  • Ónotuðum lyfjum sé skilað til förgunar í apótek
  • Lyfjum sé aldrei fargað í niðurföll eða salerni
Image

Starfsmenn í teymi hafs og vatns við sýnatökur.

Skimunin hluti af vatnaáætlun Íslands

Vöktun á skaðlegum efnum í vatni er hluti af verkefnum undir vatnaáætlun Íslands og LIFE Icewater verkefninu.

Vatnaáætlun Íslands er ætlað að vernda vistfræðilegt og efnafræðilegt ástand vatns. Í framkvæmd nær hún fyrst og fremst til hefðbundinna mengunarefna. Í dag eru engin lyf með lögbundin viðmiðunargildi í vatni, en búast má við að slík viðmið verði sett fyrir ákveðin efni á næstu árum.

Fleiri fréttir

Skoða
19. maí 2026
Auglýsing: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús
Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Styrkjunum er ætlað að styðja við uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa og auðvelda húsfélögum sem standa frammi fyrir sérstaklega kostnaðarsamri uppbyggingu á slíkum innviðum að ráðast í framkvæmdir. Styrkhæf verkefni Styrkhæf eru húsfélög fjöleignarhúsa sem eru með 8 íbúðir eða fleiri og þar sem byggingarleyfi var gefið út áður en breyting á byggingarreglugerð nr. 112/2012 tók gildi 20. júní 2018. Fjölbýlishús sem hafa þegar komið upp hleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum eru ekki styrkhæf. Styrkir eru meðal annars veittir fyrir lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum við sameignarstæði og fyrir stækkun, færslu eða nýja heimtaug fjölbýlishússins. Styrkupphæð Styrkupphæð getur numið allt að 5 milljónum króna á hvert verkefni, en þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði. Umsóknarfrestur Opnað verður fyrir umsóknir 22. maí og er umsóknarfrestur vegna styrkjanna til 1. október kl. 15:00. Sótt er um í gegnum island.is á vef Loftslags- og orkusjóðs. Nánari upplýsingar Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Spurningum má beina á orkusjodur@uos.is. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað" á heimasíðu sjóðsins. Aðgerðir ríkisstjórnar Styrkirnir eru liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og aukinnar óvissu á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna stríðsátaka við Persaflóa sem kynntar voru á fréttamannafundi 10. apríl síðastliðinn. Aðgerðirnar miða annars vegar að því að verja heimili fyrir áhrifum verðhækkana og hins vegar að því langtímaverkefni að gera sem flestum kleift að slíta sig frá dælunni og nota hreina íslenska orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Vegna hins síðarnefnda hefur Loftslags- og orkusjóður þegar auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla um allt land með það að markmiði að loka gatinu í hraðhleðsluneti á vegum landsins. Þá verða styrkir vegna hleðsluinnviða við gististaði auglýstir innan skamms. Samhliða vinna stjórnvöld að breytingum sem eiga að tryggja einfaldara og samræmdara greiðslufyrirkomulag við hleðslu rafbíla.
19. maí 2026
Aukin afköst og samlegð með nýrri Umhverfis- og orkustofnun – Greining World Energy Council
Ný alþjóðleg greining staðfestir sterka stöðu Íslands í orkumálum en bendir jafnframt á að næsti áfangi orkuskipta ráðist af framkvæmdagetu, skilvirku regluverki og samhæfingu. Þetta kemur fram í World Energy Issues Monitor 2026, árlegri greiningu World Energy Council á stöðu og helstu áskorunum í orkumálum á heimsvísu. Ísland meðal fremstu ríkja Í greiningunni á stöðu Íslands kemur fram að landið er áfram meðal fremstu ríkja heims á sviði orkumála, með nær alfarið endurnýjanlega raforkuframleiðslu og hitaveitu. Þar kemur einnig skýrt fram að helstu áskoranir framtíðarinnar snúa síður að auðlindum eða tækni heldur mun frekar að getu til framkvæmda, skilvirku regluverki og stjórnsýslu, og samhæfingu. Bent er á að Ísland standi á ákveðnum tímamótum. Landið hefur náð árangri í fyrstu kynslóð orkuskipta, en framhaldið mun ráðast af því hvort takist að hrinda í framkvæmd sífellt flóknari innviðaverkefnum, tryggja samræmda stefnu og skapa skilvirkt regluverk. Sameining stofnana skilar árangri Sameining Orkustofnunar og Umhverfisstofnunar árið 2025 er metin sem mikilvæg kerfisbreyting í þessa átt. Með henni er dregið úr tvíverknaði, aukið á samhæfingu milli orku- og umhverfismála og skilvirkni í leyfisveitingum bætt. Fyrstu niðurstöður benda til þess að þessi nálgun hafi þegar skilað verulegum árangri. Á fyrsta starfsári nýrrar stofnunar jókst afkastageta í leyfisveitingum um allt að 75%, án þess að gæðum væri fórnað. Uppbygging innviða stærsta áskorunin Greiningin undirstrikar að stærsta áskorun Íslands felst nú í uppbyggingu og afhendingu innviða. Orkukerfið er að þróast frá tiltölulega einföldu kerfi yfir í flókið, samþætt kerfi þar sem rafvæðing samgangna, umbreyting iðnaðar og aukin orkunotkun setja auknar kröfur á skipulag og framkvæmd. Ef samhæfing er ekki nægileg getur tafir í einum hluta kerfisins haft keðjuverkandi áhrif, aukið kostnað og dregið úr trausti fjárfesta. Því er ljóst að framkvæmdageta og samræming milli kerfa verða lykilforsendur áframhaldandi árangurs. Fyrirsjáanlegt regluverk mikilvægt Óvissa í leyfisveitingum er skilgreind sem einn stærsti áhrifaþátturinn á fjárfestingar. Hún getur lengt framkvæmdatíma, aukið kostnað og áhættu. Til að bregðast við þessu hafa stjórnvöld lagt áherslu á einfaldari og hraðari ferla, skýrari tímamörk og markvissa forgangsröðun verkefna. Markmiðið er að styrkja samkeppnishæfni Íslands og auka aðdráttarafl fyrir fjárfestingar í grænni orku og innviðum. Orkuskipti í alþjóðlegu samhengi Þrátt fyrir sterka stöðu í endurnýjanlegri orku er Ísland hluti af alþjóðlegu kerfi. Áhætta tengist því ekki síst: Aðfangakeðjum Fjármagnsflæði Stafrænum innviðum Alþjóðlegri óvissu Á sama tíma stefnir Ísland að kolefnishlutleysi fyrir 2040. Það kallar á frekari rafvæðingu, nýsköpun og samspil loftslagsmála og náttúruverndar. Þessi tvíþætta áskorun, að hraða orkuskiptum og verja náttúru, verður lykilverkefni næstu ára. Mynd úr skýrslunni: Vöktun orkumála í heiminum - staðan 2026. Um skýrsluna Skýrslan byggir á mati rúmlega 2.750 leiðtoga í orkumálum frá meira en 110 löndum. World Energy Council var stofnað árið 1923 er eitt elsta sjálfstæða og óháða alþjóðasamfélag leiðtoga og sérfræðinga á sviði orkumála. Ísland er aðili að ráðinu og Umhverfis- og orkustofnun er tengiliður þess hér á landi. Verkefnið á Íslandi var unnið undir forystu Umhverfis- og orkustofnunar í samstarfi við Landsvirkjun og Samorku.
13. maí 2026
Samstarf um framkvæmd umhverfislöggjafar – Stjórn IMPEL í heimsókn
Stjórn IMPEL (European Union Network for the Implementation and Enforcement of Environmental Law) heimsótti Ísland dagana 5. og 6. maí 2026 og átti fundi með stjórnvöldum og stofnunum sem annast stjórnsýslu og framkvæmd umhverfismála á Íslandi. Umhverfis- og orkustofnun fer með hlutverk landsfulltrúa Íslands innan IMPEL og skipulagði heimsóknina í samstarfi við þátttakendur innan netsins. IMPEL er rótgróið samstarfsnet umhverfisyfirvalda í Evrópu og hefur starfað frá árinu 1992. Markmið IMPEL er að efla framkvæmd og eftirfylgni umhverfislöggjafar með því að miðla reynslu, þróa verkfæri og auka samstarf milli eftirlits- og leyfisveitandi stjórnvalda í Evrópu. Á fundunum var farið yfir skipulag og framkvæmd umhverfiseftirlits á Íslandi, áskoranir tengdar innleiðingu EES-regluverks og kynningar á verkefnum og sérfræðihópum IMPEL. Einnig var rætt um möguleika á aukinni þátttöku íslenskra aðila í verkefnum IMPEL og hvernig starfið getur stutt við þróun framkvæmdar og eftirlits á Íslandi. Sérstök áhersla var lögð á umræður um: Úrgangsmál Mengunarvarnir og iðnaðareftirlit Haf- og vatnamál Náttúrvernd Umhverfisglæpi Áhættumiðað eftirlit Nýjar stafrænar lausnir Á fundunum var góð þátttaka lykilstofnana í framkvæmd umhverfislöggjafar, sem skapaði lifandi umræður og skýran vilja til að efla samstarf og auka skilvirkni í stjórnsýslunni. Ísland hefur verið virkur þátttakandi í IMPEL frá 2010, þar sem að Umhverfisstofnun var upphaflega meðlimur og svo Umhverfis- og orkustofnun.  IMPEL er mikilvægt samstarfsnet sem hefur styrkt íslensk stjórnvöld með því að efla samræmda, skilvirka og faglega framkvæmd umhverfislöggjafar í gegnum þekkingarmiðlun og samstarf á evrópskum vettvangi.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800