Til baka
4. júní 2025
Námskeið í sóttvörnum vegna húðrofs

Umhverfis- og orkustofnun stendur fyrir námskeiðum í sóttvörnum fyrir þau sem framkvæma hvers kyns húðrof, svo sem húðgötun, húðflúrun, fegrunarflúrun og nálastungur.
Námskeiðið er skylda fyrir þau sem hafa ekki lokið námi á heilbrigðissviði sem felur í sér fræðslu um smitgát og sóttvarnir.
Sjá nánar í 2. mgr. 34. gr. rg. nr. 903/2024 um hollustuhætti.
Information on the course in English
Um námskeiðið
Á námskeiðinu verður farið yfir alla þætti sem snúa að framkvæmd húðrofs með sérstaka áherslu á sóttvarnir og hreinlæti. Námskeiðið er blanda af fyrirlestrum og sýnikennslu. Í lok námskeiðs þurfa þátttakendur að standast hæfnispróf. Nauðsynlegt er að hafa meðferðis eigið snjalltæki til að taka hæfnisprófið á.
Kennarar á námskeiðinu eru:
- Ása S. Atladóttir, hjúkrunarfræðingur
- Brynjar Björnsson, húðflúrari
- Ísak S. Bragason, teymisstjóri í teymi efnamála hjá Umhverfis- og orkustofnun
- Stella Hrönn Jóhannsdóttir, sérfræðingur hollustuhátta hjá Umhverfis- og orkustofnun
Dagsetningar
Tvær dagsetningar eru í boði:
- Miðvikudaginn 25. júní frá kl. 09:00 – 16:00. Kennt á íslensku. Síðasti skráningardagur er 15. júní.
- Þriðjudaginn 8. júlí frá kl. 09:00 – 16:00. Kennt á ensku. Síðasti skráningardagur er 23. júní.
Staðsetning
Námskeiðið verður haldið á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.
Námskeiðsgjald
Námskeiðsgjald er 49.900 kr.
Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka umsækjanda og afrit af reikningi á mínar síður á island.is.
Síðasti greiðsludagur fyrir námskeið 25. júní er 16. júní.
Síðasti greiðsludagur fyrir námskeið 8. júlí er 29. júní.
Skráning
Skráning fer fram á https://gogn.ust.is/
Skráning er staðfest þegar námskeiðsgjöld hafa verið greidd.
Biðlisti
Haft verður samband við þá sem eru fyrstir á biðlista tveimur dögum eftir síðasta greiðsludag námskeiðsgjalda.
