Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Námskeið í sóttvörnum vegna húðrofs - september 2025

Manneskja að fá fegrunarflúr á augabrúnir
Námskeiðið er meðal annars fyrir þau sem framkvæma fegrunarflúrun.

Umhverfis- og orkustofnun stendur fyrir námskeiðum í sóttvörnum fyrir þau sem framkvæma hvers kyns húðrof, svo sem húðgötun, húðflúrun, fegrunarflúrun og nálastungur.

Námskeiðið er skylda fyrir þau sem hafa ekki lokið námi á heilbrigðissviði sem felur í sér fræðslu um smitgát og sóttvarnir.

Sjá nánar í 2. mgr. 34. gr. rg. nr. 903/2024 um hollustuhætti.

Information on the course in English

Um námskeiðið

Á námskeiðinu verður farið yfir alla þætti sem snúa að framkvæmd húðrofs með sérstaka áherslu á sóttvarnir og hreinlæti. Námskeiðið er blanda af fyrirlestrum og sýnikennslu. Í lok námskeiðs þurfa þátttakendur að standast hæfnispróf. Nauðsynlegt er að hafa meðferðis eigið snjalltæki til að taka hæfnisprófið á.

Kennarar á námskeiðinu eru:

  • Ása S. Atladóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Brynjar Björnsson, húðflúrari
  • Ísak S. Bragason, teymisstjóri í teymi efnamála hjá Umhverfis- og orkustofnun
  • Sigríður Kristinsdóttir, teymisstjóri í teymi eftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun
  • Stella Hrönn Jóhannsdóttir, sérfræðingur hollustuhátta hjá Umhverfis- og orkustofnun

Dagsetningar

Tvær dagsetningar eru í boði:

  • Fimmtudaginn 11. september frá kl. 9 – 16. Kennt á íslensku. Síðasti skráningardagur er 2. september. Síðasti greiðsludagur 5. september.  
  • Miðvikudaginn 17. september frá kl. 9 – 16. Kennt á ensku. Síðasti skráningardagur er 10. september. Síðasti greiðsludagur 13. september.

Námskeiðsgjald

Námskeiðsgjald er 49.900 kr.

Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka umsækjanda og afrit af reikningi á mínar síður á island.is.

Staðsetning

Námskeiðið verður haldið á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.

Skráning

Skráning fer fram á https://gogn.ust.is/

Skráning er staðfest þegar námskeiðsgjöld hafa verið greidd.

Biðlisti

Haft verður samband við þá sem eru fyrstir á biðlista tveimur dögum eftir síðasta greiðsludag námskeiðsgjalda.

Image

Námskeiðið er fyrir þau sem framkvæma nálastungur, fegrunarflúrun, húðgötun og húðflúrun.

Fleiri fréttir

Skoða

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800