Unnið að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar. Þeir ættu að vera að fullu komnir upp innan skamms.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot

Skilafrestur upplýsinga er 30. september 2026.

Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands.

Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði.

Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar

Umhverfis- og orkustofnun vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028-2023. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum.

Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027.

Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot

Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlotsins náist.

Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdir eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi.

Upplýsingar birtar með vatnaáætlun

Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033.

Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þarf ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar.

Skilafrestur

Skilafrestur er til og með 30. september 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Lagagrunnur

Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns.

Nánari upplýsingar

Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is.

Fleiri fréttir

Skoða
9. júlí 2026
Töluverður loftslagsábati með stuðningi Loftslags- og orkusjóðs 2025
Olíusparnaður vegna verkefna sem hlutu styrk úr Loftslags- og orkusjóði árið 2025 nam um 23 milljónum lítra á ársgrundvelli að því er fram kemur í ársskýrslu sjóðsins sem nú er komin út. Þá nam nettó raforkusparnaður vegna styrktra verkefna 59 GWst á ári, sem  samsvarar árlegri raforkunotkun um 15.000 heimila eða um 20.000 rafbíla. Mikill árangur náðist í orkuskiptum og orkunýtni á þessu fyrsta heila starfsári Loftslags- og orkusjóðs og má, að því er segir í skýrslunni, áætla að sjóðurinn hafi stuðlað að olíu- og raforkusparnaði til 15 ára, sem má verðmeta til 93 milljarða króna á núvirði. Markaðsvirði olíu- og raforkusparnaðar vegna styrktra verkefna er metið rúmlega áttfalt á við kostnað sjóðsins. Þar af er eru samkeppnisverkefnin metin langsamlegast arðbærust, en ábati vegna þeirra er metinn um 24-faldur á við kostnað sjóðsins. Alls auglýsti sjóðurinn styrki til sjö átaksverkefna í samkeppnishluta sjóðsins fyrir um 3,6 milljarða og var eftirspurn eftir styrkjum rúmlega fjórföld á við auglýsta upphæð. Ábati vegna beinna styrkja til ökutækja var tæplega fjórfaldur á við kostnað sjóðsins og þar af er ábati vegna styrkja til hóp- og vörubifreiða metinn um 80% meiri en vegna styrkja til fólks- og sendibíla. Alls námu skráðar skuldbindingar Loftslags- og orkusjóðs vegna beinna styrkja til ökutækja 8,6 ma.kr., en sjóðurinn styrkti á árinu 7.199 ökutæki, þar af 6.724 fólks- og sendibíla, 453 hóp- og vörubifreiðar og 22 nytjahjól. Þá nam samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna styrktra verkefna um 2% af samfélagslosun Íslands árið 2024.
25. júní 2026
Nýtt mælaborð veitir betri yfirsýn yfir rekstur raforkukerfisins
Raforkueftirlitið hefur birt mælaborð sem sýnir þróun lykilstærða hjá sérleyfisfyrirtækjum í flutningi og dreifingu raforku. Markmiðið er að auka aðgengi að upplýsingum um rekstur raforkukerfisins og styrkja gagnsæi í eftirliti. Í mælaborðinu er hægt að skoða þróun meðal annars á eignum, fjárfestingum, rekstrarkostnaði og afhendingu raforku. Notendur geta síað gögn eftir fyrirtækjum, tímabilum og verðlagi til að fá betri yfirsýn yfir rekstur einstakra fyrirtækja og raforkukerfisins í heild. Mælaborðið verður jafnframt grunnur að fyrirhugaðri reglubundinni skýrslugjöf Raforkueftirlitsins um fjárhags- og tækniupplýsingar sérleyfisfyrirtækja. Fjárfestingar í raforkukerfinu hafa aukist Mælaborðið sýnir að fjárfestingar í íslenska raforkukerfinu hafa verið talsverðar undanfarin 14 ár. Árið 2024 nam eignastofn sérleyfisfyrirtækjanna um 291 milljörðum króna, þar af voru eignir Landsnets metnar á um 149 milljarða króna. Til samanburðar nam eignastofn sérleyfisfyrirtækja um 139 milljörðum króna árið 2011, þar af um 82 milljörða króna hjá Landsneti. Niðurstöður benda til þess að verðmæti eignastofnsins hafi því meira en tvöfaldast á tímabilinu. Rekstrarkostnaður hefur hækkað hraðar en afhending raforku Samanlagður rekstrarkostnaður raforkukerfisins nam um 156 milljörðum króna á tímabilinu 2011 og 2024. Árlegur meðalvöxtur rekstrarkostnaðar var um 5,9%. Á sama tímabili nam heildarafhending raforku um 300 TWst. Árlegur meðalvöxtur kerfisins var um 1,1%. Gagnsæi í eftirliti Með birtingu mælaborðsins fá bæði fyrirtæki, stjórnvöld og notendur raforkukerfisins betra aðgengi að upplýsingum um rekstur og þróun raforkukerfisins á Íslandi. Það styrkir gagnsæi í eftirliti og skapar betri forsendur fyrir upplýsta ákvarðanatöku. Opna mælaborðið

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800